Lífið

Aðalsteinn frændi ekki hátt skrifaður hjá Sólveigu Önnu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aðalsteinn frændi gengur inn á fund með Sólveigu Önnu frænku og samninganefnd Eflingar.
Aðalsteinn frændi gengur inn á fund með Sólveigu Önnu frænku og samninganefnd Eflingar. Vísir/Vilhelm

Oft er sagt að Ísland sé lítið og þar þekkist allir. Fyrir vikið sé frændhygli mikil á landinu kalda þar sem skyldmenni hjálpist að. Það virðist þó ekki vera tilfellið þegar kjaradeila Eflingar við Samtök atvinnulífsins er annars vegar. Þar takast skyldmenni á.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar stendur í ströngu í deilu sinni við Samtök atvinnulífsins og ekki síður ríkissáttasemjara. Eftir að Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu í deilunni má segja að allt hafi orðið vitlaust.

Sáttasemjari stefndi Eflingu til að fá félagatal stéttarfélagsins afhent í þeim tilgangi að láta atkvæðagreiðslu allra félagsmanna fara fram. Sólveig hefur krafist þess að Aðalsteinn stígi til hliðar úr deilunni enda hafi inngrip hans sýnt að hann ráði engan veginn við að miðla málum. Hann hafi með miðunartillögu sinni brotið lög vegna þess að hann ráðfærði sig ekki við Sólveigu Önnu í aðdragandanum.

„Ríkissáttasemjari braut lög. Hann hefur eflaust talið, ásamt ráðgjöfum sínum og samverkafólki, að sökum þess að forysta Eflingar er „umdeild“ kæmist hann upp með það. En þar hafði hann rangt fyrir sér. Hann mun ekki komast upp með tilraun sína til að svipta Eflingu sjálfstæðum samningsrétti. Það mun aldrei gerast,“ sagði Sólveig á Facebook í gær.

Frændi og frænka

Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, heldur því til haga í öllu þessu fjölmiðlafári að Sólveig og Aðalsteinn eru náskyld. Í annan og þriðja lið.

Árni Jónsson alþingismaður frá Múla (1891-1947) og Ragnheiður Jónsdóttir (1892-1956) voru langamma og langafi Aðalsteins en um leið amma og afi Sólveigar. Hann rekur frændsemina skilmerkilega á Facebook. Valgerður Árnadóttir, amma Aðalsteins, var systir Jóns Múla Árnasonar, föður Sólveigar Önnu.

  • Árni Jónsson alþingismaður frá Múla (1891-1947) og Ragnheiður Jónsdóttir (1892-1956)
  • Valgerður Árnadóttir (1918-1999)
  • Margrét Valgerðardóttir, sjúkraliði í Reykjavík (1943)
  • Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari (f. 1967)

  • Árni Jónsson frá Múla (1891-1947) og Ragnheiður Jónsdóttir (1892-1956)
  • Jón Múli Árnason útvarpsþulur (1921-2002)
  • Sólveig Anna Jónsdóttir (f. 1975)

Óhætt er að segja að frændsemin þvælist ekki fyrir Sólveigu og Aðalsteini í deilu sinni þessi dægrin. Félagsmenn Eflingar eru á leið í verkfall á meðan tekist er um í deilunni bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi.


Tengdar fréttir

SA stefna Eflingu fyrir Fé­lags­dóm

Samtök atvinnulífsins ætla að höfða mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar á Íslandshótelum urðu ljós í gærkvöldi.

Hafa sam­þykkt verk­falls­boðun

Starfsmenn Íslandshótela hafa samþykkt boðun um verkfallsaðgerðir. Rafræn atkvæðagreiðsla sem hófst á hádegi síðastliðinn þriðjudag lauk nú fyrir stuttu. Verkfall hefst í næstu viku, hafi samningar ekki náðst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.