Lífið

„Hér þarf ég ekki að binda mig við skipsmastur í óveðri“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bjarni Sigurbjörnsson
Bjarni Sigurbjörnsson Jenný Sigurgeirsdóttir

Fjölmenni var á opnun Bjarna Sigurbjörnssonar í Portfolio galleri síðustu helgi. Bjarni flutti úr bæjarlífinu vestur á Hellissand um mitt ár 2022 og hefur verið að reisa sér virki listarinnar ásamt spúsu sinni Ragnheiði Guðmundsdóttur. 

Þeim fannst við hæfi, verandi í jaðri náttúruhallarinnar Snæfellsjökuls, að skíra húsið Himinbjörg, eftir dvalarstað Heimdallar.

Snorri Ásmundsson, Skúli Gunnlaugsson, Helgi Þorgils Friðjónsson Jenný Sigurgeirsdóttir

„Sýningin ber nafnið Tóra og er tvískipt, annarsvegar er veðurhamur Bjarna hugleikin. Einskonar holdbirting andrúmsins, birtuspil ljóss og skugga sem brotnar þegar síbreytileg veðurorkan rekst á bein og skinn jarðar og sjór og himinn hverfast saman í ólgandi skinn hjúp eða skiljast að í hárfínni lita skerpu. Úr verður líkamning veðurs og lands.Hinsvegar eru verk sem tengjast erótískum blæbrigðum holdsins varpað fram með munaðarfullum efnistökum og djarfri litbeitingu,“ segir í tilkynningu um sýninguna. 

Gísli Gíslason, Elísabet Snorradóttir, Jóhanna BjörnsdóttirJenný Sigurgeirsdóttir

Þegar Bjarni er inntur eftri því hvernig fari um hann á Hellisandi segir hann: 

„Hér þarf ég ekki að binda mig við skipsmastur í óveðri eins og Turner forðum til að fá beina reynslu af veðurofsa, því kraftur náttúrunnar hér er svo firna sterkur og allt um liggjandi, lifandi hold sem við lesum, lifum og hrærumst í.“

Jón Óskar, Þórarinn Sigurbergsson, Inga Elín KristinsdóttirJenný Sigurgeirsdóttir

Sýningin Tóra er opin fim til sun og stendur til 29 janúar í Portfolio gallerí við Hverfisgötu 71.

Jenný Sigurgeirsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.