Knattspyrnugoðsögnin heimsótti Ísland í ágúst 1991 en hann var þá á flakki um heiminn í tilefni útgáfu ævisögu hans. Háttvísi var þó boðskapurinn sem var áberandi við heimsókn Pele sem áritaði spjöld þar sem minnt var á þann ágæta boðskap.
Pele flaug fyrst til Akureyrar þangað sem fólk flykktist á Akureyrarvöll til að bera stjörnuna augum. Þar kom í ljós að smá babb var komið í bátinn með ferðatöskur þess brasilíska.
Pelé reddað á Akureyri
Nefnd tók á móti Pelé og lögfræðingi hans á Keflavíkurflugvelli. Þar beið hópsins lítil flugvél sem flaug með hann beint til Akureyrar. En vesen með ferðatöskur fer greinilega ekki í manngreinarálit. Í Keflavík kom nefnilega í ljós að ferðatöskur Pelés og lögfræðings hans höfðu orðið eftir í Brasilíu.
Þá voru nú góð ráð dýr.
Akureyringar brugðust hratt við. Þegar komið var á Hótel KEA var búið að útvega allar helstu nauðsynjar fyrir töskulausa ferðalanga. Þar á meðal voru náttföt, náttsloppur, rakáhöld og annað nauðsynlegt fyrir ferðalag um landið. Þar á meðal hljóta að hafa verið spariföt því tekið er fram í frásögninni á öðrum stað að önnur föt hafi passað betur.
Úr umfjöllun á heimasíðu UMFÍ þar sem vísað er í greinar í Lemúrnum og Íslenskri knattspyrnu
Þaðan fór hann til Egilsstaða þar sem nýr grasvöllur knattspyrnudeildar Hattar var vígður. Í bók Víðis Sigurðssonar, Íslensk knattspyrnu, segir að Hermann Níelsson, formaður deildarinnar, hafi fylgst forviða með snillingnum.
„Pelé og Ásgeir Sigurvinsson tóku miðju, og síðan dansaði Pelé upp völlinn með boltannn og skoraði með pottþéttu skoti frá vítateig í bláhornið. Ég hef aldrei séð aðra eins líkamsbeitingu við markskot, það var hrein list. Þó þarna væri fimmtugur maður á ferð, fór ekki á milli mála að um hreinan snilling var að ræða,“ sagði Hermann.
Heimsókn Pele er rifjuð upp á heimasíðu Ungmennafélags Íslands sem gefið hefur út tímarit sitt Skinfaxa. Að sjálfsögðu var tekin mynd af Pele glugga í blaðið. Lemúrinn rifjaði upp heimsóknina fyrir nokkrum árum með sínum einstaka hætti.
Í Vestmannaeyjum afhenti Pele svo verðlaun á Norðurlandamóti drengja. Englendingar unnu sigur á mótinu, já Norðurlandamótinu.
Þá fór Pele í þyrlu frá Reykjavík til Akraness og snæddi þar hádegisverð með ýmsum gömlum kempum, svo sem knattspyrnuhetjunni og Skagamanninum Ríkharði Jónssyni, sem þá var 62 ára. Pelé fékk að gjöf handprjónaða ullapeysu sem gömul kona á Akranesi prjónaði, eins og segir í bók Víðis.
Pele fylgdist svo með Pele-móti fyrir 6. flokk karla á Laugardalsvelli þar sem hann afhenti verðlaun. Fjölmargar myndir frá verðlaunaafhendingunni má sjá að neðan.
Pele snæddi svo með stjórn KSÍ og borgarstjóra í Höfða og var við hátíðarkvöldverð á Hótel Sögu.
Jóhann Gunnar Kristinsson, lengi vallarstjóri á Laugardalsvelli og ljósmyndari með meiru, tók fjölmargar myndir við heimsókn Pele. Þeirra á meðal mynd sem Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Fram í handbolta, birti á Facebook í tilefni tímamótanna. Myndin er tekin í gamla félagsheimili Fram í Safamýri.
„Það voru alls konar fyrirmenni úr knattspyrnuheiminum mætt til að hitta hann,“ segir Einar auk þess sem allt var morandi í krökkum úr hverfinu.
„Það vissu allir að hann væri að koma. Svo var hann að árita hluti og svona, var í myndatökum. Svo stóðum við þarna nokkrir krakkar og þá rífur hann í mig,“ segir Einar hlæjandi.
Þá hafi átt að funda með Pele, svipað og þegar karlmenn í gamla daga fóru afsíðis til að ræða alvöru mál og reykja vindla, án skarkalans. Einar er ekki viss hvers vegna Pele hafi rifið í sig.
„Kannski hafði hann aldrei séð svona ljóshærðan strák áður,“ segir Einar sem skartaði ljósum lokkum á þessum tíma. Og gerir reyndar enn.
Að neðan má sjá ýmsar myndir sem Jóhann Gunnar tók frá heimsókn Pele frá 11. til 14. ágúst. Þar bregður ýmsu góðu fólki fyrir og óhætt að segja að það borgi sig að vera með myndavélina á lofti til að skrá söguna. Eitthvað sem Framarar hafa getað treyst á svo áratugum skiptir. Myndasafn Jóhanns Gunnars má sjá hér.