Jóhann Berg segir að leikmenn Burnley séu svekktir að fá ekki að mæta Ronaldo Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. desember 2022 09:00 Jóhann Berg Guðmundsson fylgist með Cristiano Ronaldo í leik Íslands og Portúgals á EM 2016. vísir/getty Jóhann Berg Guðmundsson segir að yngri leikmenn Burnley séu svekktir að fá ekki tækifæri til að mæta Cristiano Ronaldo þegar liðið sækir Manchester United heim í 4. umferð enska deildabikarsins í kvöld.
Ronaldo yfirgaf United á meðan heimsmeistaramótinu í Katar stóð eftir að hafa gert allt vitlaust með viðtali hjá Piers Morgan þar sem hann gagnrýndi allt og alla hjá félaginu. Leikmenn Burnley fá því ekki tækifæri til að mæta Ronaldo í kvöld. Jóhann Berg segir að það sé svekkjandi fyrir yngri leikmenn liðsins. „Ég hef spilað nokkrum sinnum við hann en ungu leikmennirnir eru eflaust svekktir að fá ekki tækifæri til að spila á móti honum,“ sagði Jóhann Berg á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Þú vilt spila við þá bestu og strákarnir misstu af tækifærinu. En hann er þá ekki vandamál fyrir okkur því hann er enn hættulegur í vítateignum. Svo þetta gæti verið gott fyrir okkur.“ Jóhann Berg mætti Ronaldo meðal annars í fyrsta leik Íslands á stórmóti, á EM 2016. Íslendingar og Portúgalir gerðu þá 1-1 jafntefli. Jóhann Berg lagði upp mark Íslands fyrir Birki Bjarnason. Burnley er með þriggja stiga forskot á toppi ensku B-deildarinnar. Liðið vann Middlesbrough, 3-1, í síðasta leik sínum.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira