Lið Dusty og Viðstöðu áttu að mætast í 11. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO í gærkvöldi en Dusty mætti ekki til leiks. Liðið átti að keppa í ESEA deildinni gegn Team Impression á sama tíma en andstæðingar þeirra í báðum leikjum gátu ekki spilað á öðrum tíma.
Dusty neyddist því til að gefa annan hvorn leikinn og líklega vegna sterkrar stöðu þeirra í Ljósleiðaradeildinni ákvað liðið að spila frekar í ESEA deildinni þar sem liðið vann Team Impression 2–1.
Dusty er enn sem komið er jafnt Atlantic á toppi deildarinnar, en Atlantic á þó leik til góða. Stigin tvö koma Viðstöðu svo ágætlega sem er nú jöfn Ármanni, SAGA og Breiðabliki í 5.-8. sæti.
Næstu leikir liðanna:
- Ármann – Dusty, þriðjudaginn 3/1, klukkan 20:30
- Breiðablik – Viðstöðu, fimmtudaginn 5/1, klukkan 21:30
Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.