Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna 2023 afhjúpaðar Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. desember 2022 17:41 Höfundarnir sem hlutu tilnefningu til Fjöruverðlaunanna í ár. Vísir/Egill Aðalsteinsson Mikið var um dýrðir á Borgarbókasafninu í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar níu bækur voru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi.
Eftirfarandi höfundar og bækur hlutu tilnefningar í þetta skiptið. Í flokki barna- og unglingabókmennta: Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur Bronsharpan eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur Héragerði. Ævintýri um súkkulaði og kátínu eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis: Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar eftir Önnu Sigríði Þráinsdóttur og Elínu Elísabetu Einarsdóttur Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur Vegabréf: Íslenskt. Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur Í flokki fagurbókmennta: Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur Urta eftir Gerði Kristnýju Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur Hér fyrir neðan má lesa rökstuðning dómnefndar. Í flokki barna- og unglingabókmennta: Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur Í Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur er hinn ungi Álfur fimleikastrákur aðalsöguhetjan og sögumaðurinn. Eftir því sem frásögn hans vindur fram kemur í ljós að sjónarhorn Álfs er ekki mjög áreiðanlegt enda neitar hann að horfast í augu við að litli bróðir hans sé einhverfur, að frænka hans eigi við fíknivanda að etja og að besti vinur hans sé lesblindur. Höfundur leikur fimlega á allan tilfinningaskalann og teflir fram sögumanni sem eignast hugi og hjörtu lesenda á öllum aldri. Sagan er í senn áhrifamikil, skemmtileg og spennandi en fyrst og fremst full af hlýju og mennsku. Bronsharpan eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur Bronsharpan er önnur bókin í bókaflokknum Dulstafir eftir Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur. Sagan gerist í ókunnum heimi þangað sem nokkur ungmenni hafa verið kölluð til að bjarga honum frá tortímingu. Þau eru gæslumenn grunnefna jarðarinnar og gædd sérstökum kröftum. Samvinna ungmennanna og samskipti kynjanna litast af því að í raunheimum lifa þau á ólíkum tímum og þau hafa ólíka hæfileika. Togstreitan sem verður til þegar þau þurfa að stilla saman strengi sína dýpkar persónulýsinguna og dregur fram ólíka skapgerð þeirra. Sagan er margræð og spennandi fantasía um baráttu góðs og ills en ekki síst um gildi vináttu og samstöðu. Héragerði. Ævintýri um súkkulaði og kátínu eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur Héragerði eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur er sjálfstætt framhald Grísafjarðar sem kom út í fyrra og hefur undirtitilinn Ævintýri um súkkulaði og kátínu. Tvíburarnir Inga og Baldur kynnast móðurömmu sinni og eyða páskafríinu með henni í Héragerði. Þar gerast margvísleg ævintýri og þau eignast nýja vini. Höfundi tekst vel að draga upp mismunandi persónuleika tvíburanna sem gerir söguna dýpri og auðveldar mismunandi lesendum að samsama sig söguhetjunum. Sagan er bráðskemmtileg og fyndin og þar leika líflegar og litríkar myndir Lóu Hlínar stórt hlutverk. Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis: Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar eftir Önnu Sigríði Þráinsdóttur og Elínu Elísabetu Einarsdóttur Þær Anna Sigríður Þráinsdóttir og Elín Elísabet Einarsdóttir vinna sannkallað þrekvirki við kortlagningu nýyrða þjóðskáldsins og þýðandans Jónasar Hallgrímssonar. Í bókinni Á sporbaug. Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar fá lesendur að kynnast uppruna orðanna og notkun þeirra í dag. Orðasveimur Jónasar fylgir okkur í daglegu máli, ræðu og riti án þess að við veitum því minnstu athygli enda hluti almenns orðaforða íslenskrar tungu. Bókin er einstaklega vel unnin, eiguleg og mikill fengur fyrir öll sem unna íslenskri tungu. Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur Á horni Þingholtsstrætis og Spítalastígs stendur yfir aldargamalt, tveggja hæða timburhús með viðburðaríka sögu; fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga, farsóttarspítali, geðsjúkrahús og gistiskýli fyrir heimilislausa. Í dag er það mannautt og ber dulúðlegt nafn með rentu. Í Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 rekur Kristín Svava Tómasdóttir sögu þessa merka húss, sem umfram allt er litrík saga fólksins sem húsið hýsti og samfélagsins sem skóp það. Vegabréf: Íslenskt. Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó. eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur Sigríður Víðis Jónsdóttir býður lesandanum að slást í för með sér vítt og breitt um heiminn. Vegabréf: Íslenskt. Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó er einlæg og nærgætin frásögn frá ferðalögum hennar til svæða sem bera djúp ör einræðisstjórna og hernaðarátaka. Sögumaður leggur sig fram við að kynna og kanna hugarheim heimafólks og þannig fær lesandinn að kynnast heimssögunni fjarri söguskoðun innlendra valdhafa og vestrænna fréttamiðla. Bækurnar sem komust á listann í ár.Vísir/Egill Aðalsteinsson Í flokki fagurbókmennta: Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur fjallar um málvísindakonu og háskólakennara sem kaupir sér sumarhús nálægt ótilgreindu þorpi til að búa sér persónulegt athvarf. Það reynist erfitt að einangra sig, ástsjúkt ungskáld herjar á hana og þorpsbúar vilja virkja krafta hennar á marga ólíka vegu. Og nú ber hún líka ábyrgð á jarðarskika. Bókin er full af hlýrri íroníu og gagnrýni á þá sem svæfa samvisku sína og ganga burt frá því sem þeim hefur verið trúað fyrir. Urta eftir Gerði Kristnýju Urta eftir Gerði Kristnýju er ljóðabálkur um líf konu á mörkum hins byggilega heims við norðurskaut. Ljóðin lýsa heimi þar sem eins dauði er annars brauð. Þrátt fyrir miskunnarleysið tengir þráður samkenndar og samstöðu mæður sem hunsa mörkin milli manns og dýrs, menningar og náttúru. Urta er ort af fágætri stílsnilld. Hún er fágað, lágmælt listaverk, ljóðabálkur sem rúmar bæði dýptir og víddir. Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur Tól eftir Kristínu Eiríksdóttir segir sögu kvikmyndagerðarkonu, sem vinnur að heimildarmynd um ógæfumann sem hún eitt sinn þekkti. Eftir því sem verkinu miðar fram verður saga hennar stríðari, nærgöngulli og margþættari. Hún er krafin um afstöðu til persónanna í myndinni en vitandi að„sögur eru vopn“ neitar hún að útdeila sekt og sakleysi og nota þau tól sem tiltæk eru gegn sínum minnsta bróður. Djúphugsað og margslungið skáldverk í samtali sínu við samvisku og samkennd.
Menning Bókaútgáfa Bókmenntir Tengdar fréttir Katrín tilnefnd til bókmenntaverðlauna Einskonar samruni Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 varð þegar tilnefningar voru kynntar nú rétt í þessu á Kjarvalsstöðum. Athygli vekur að meðal hinna tilnefndu er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir frumraun sína sviði glæpasagnagerðar. 1. desember 2022 17:37 Lóu krossbrá þegar hún sá Gunnar Helgason á Kjarvalsstöðum Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar á Kjarvalsstöðum með pompi og pragt í gær. Á þessum tíma árs ríkir mikil spenna meðal rithöfunda sem mega alls ekki við miklu óvæntu. 2. desember 2022 13:16 Natasha S. hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Rithöfundurinn Natasha S. hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Máltaka á stríðstímum sem kemur í verslanir í dag. 17. október 2022 14:27 Mest lesið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Sykurlausar og dísætar smákökur Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira
Katrín tilnefnd til bókmenntaverðlauna Einskonar samruni Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 varð þegar tilnefningar voru kynntar nú rétt í þessu á Kjarvalsstöðum. Athygli vekur að meðal hinna tilnefndu er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fyrir frumraun sína sviði glæpasagnagerðar. 1. desember 2022 17:37
Lóu krossbrá þegar hún sá Gunnar Helgason á Kjarvalsstöðum Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar á Kjarvalsstöðum með pompi og pragt í gær. Á þessum tíma árs ríkir mikil spenna meðal rithöfunda sem mega alls ekki við miklu óvæntu. 2. desember 2022 13:16
Natasha S. hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Rithöfundurinn Natasha S. hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Máltaka á stríðstímum sem kemur í verslanir í dag. 17. október 2022 14:27