Árið 1988 sigldi RAX í Nólsey en eyjan hefur rólegan gamaldags sjarma.
„Það er svolítið gaman að fylgjast með þessu rólegheitarlífi og þessum vingjarnlegheitum sem þú mætir alls staðar í Færeyjum.“
Í Nólsey tóku á móti honum tveir menn sem minntu hann á Gög og Gokke. Hann velti því fyrir sér hvort þeir væru fluttir í kyrrðina í Nólsey til þess að flýja frægðina.
„Í stað þess að setja fólk á heilsuhæli þá ætti að senda það til Færeyja.“
Frásögnina má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
Færeyjar eru í sérstöku uppáhaldi hjá Ragnari Axelssyni og þá sérstaklega einstöku týpurnar og skrautlegu karakterarnir sem þar búa. Hann hefur nokkrum sinnum áður sagt frá ævintýrum sínum í Færeyjum í eldri þáttum af RAX Augnablik og má sjá þrjú vel valin dæmi hér fyrir neðan.
Litli drengurinn í Elduvík
Ragnar heimsótti þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997 og náði þar einstökum myndum, þar á meðal af nýfæddum litlum dreng. Áður en bókin Andlit norðursins var endurútgefin fór ljósmyndarinn aftur í sama þorpið til þess að finna strákinn á myndinni á ný.
Lífið í Fugley
Árið 1988 dvaldi Ragnar í mánuð í Færeyjum og myndaði mannlífið. Í Fugley eru tvær byggðir, Kirkja og Hattarvík, en þar kynntist ljósmyndarinn einstökum karakterum.
Á fýlaveiðum
Færeyingar eru að mörgu leyti í sterkum tengslum við náttúruna og Ragnar elti eitt sinn mann að nafni Heine upp á fuglabjarg til þess að fylgjast með honum veiða fýl með háfi. Lífið í Færeyjum er í öðrum takti en við eigum að venjast sem Ragnar segir að sé stór hluti af sjarma eyjanna.