Danir vilja framlengja við Hjulmand þrátt fyrir klúðrið í Katar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. desember 2022 11:31 Strákarnir hans Kaspers Hjulmand fengu aðeins eitt stig af níu mögulegum í D-riðli heimsmeistaramótsins í Katar. getty/Stuart Franklin Þrátt fyrir að Danir hafi fallið úr leik á neyðarlegan hátt á HM í Katar ætlar danska knattspyrnusambandið að framlengja samning landsliðsþjálfarans Kaspers Hjulmand.
Danmörk tapaði fyrir Ástralíu, 1-0, og endaði í neðsta sæti D-riðils með eitt stig og eitt mark. Þrátt fyrir það hafa forráðamenn danska knattspyrnusambandsins mikla trú á Hjulmand og vilja halda honum í starfi. „Við viljum enn framlengja samninginn við hann. Við förum ekki á taugum. Á níu dögum höfum við tapað tveimur leikjum og gert eitt jafntefli. Við erum ánægðir með Kasper og viljum halda honum hjá okkur um ókomin ár,“ sagði Peter Møller, formaður danska knattspyrnusambandsins, eftir leikinn í gær. Hann viðurkenndi samt að árangurinn á HM væri óviðunandi. Hjulmand tók við danska landsliðinu af Åge Hareide fyrir tveimur árum. Undir hans stjórn komst danska landsliðið í undanúrslit á EM í fyrra. Hjulmand hefur stýrt Dönum í 37 leikjum; 23 þeirra hafa unnist, ellefu tapast og þrír endað með jafntefli.
HM 2022 í Katar Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki Sjá meira