Gat ekki spilað leikinn vegna sjóveiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. nóvember 2022 10:30 Roberta Stropé lætur vaða á markið í leik með Selfossi á móti Haukum. Vísir/Hulda Margrét Lykilleikmaður Selfossliðsins missti af leik liðsins í Vestmannaeyjum um helgina vegna sjóveiki. Hún mætti samt til Eyja daginn áður.
Selfosskonur mættu tímalega til Vestmannaeyja eða daginn fyrir leik en þær þurftu að sigla þangað frá Þorlákshöfn. Það var greinilega ekki nógu gott í skjóinn í þessu þriggja tíma sjóferð því ferðin tók einn öflugast leikmann liðsins alveg úr umferð. „Selfyssingar voru án Robertu Stropé sem sá sér ekki fært að spila þennan leik sökum sjóveiki. Það er leiðinlegt að taka alla helgina, koma á föstudegi og geta ekki enn spilað á laugardegi út af sjóveiki,“ sagði Svava Kristín Gretarsdóttir, umsjónarkona Seinni bylgjunnar í umfjölluninni um leik ÍBV og Selfoss. „Mér skilst að hún geti ekki farið til Eyja þú hún sé ‚off' eftir þessar blessuðu siglingar,“ sagði Sigurlaug Rúnarsdóttir. „Ég held að hún sé ekki að flytja til Eyja á næstunni og ÍBV reynir ekki að semja við hana,“ sagði Svava Kristín. „Hver er sjóveikur í sólarhring,“ spurði Einar Jónsson hissa og fékk stutt og einfalt svar. „Roberta“ svaraði Sigurlaug. „Það er ótrúlega leiðinlegt að missa Robertu því hún er lykilmaður í vörn hjá Selfossi og að missa hana rétt fyrir leik,“ sagði Svava. „Þú fannst það líka á vörninni hjá Selfossi því hún skiptir það miklu máli hjá þeim og þetta var því mjög dýrt fyrir þær,“ sagði Sigurlaug. Það má horfa á umfjöllunina um fjarveru Robertu Stropé hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Sjóveiki í Selfossliðinu
Olís-deild kvenna Seinni bylgjan UMF Selfoss Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira