Lífið

Giskaði á rétt svar og kom liðinu á­fram í undan­úr­slitin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þór Þ. og Leiknir mættust í Kviss á laugardaginn. 
Þór Þ. og Leiknir mættust í Kviss á laugardaginn. 

Í spurningaþættinum Kviss á laugardagskvöldið á Stöð 2 mættust Leiknir og Þór Þorlákshöfn í 8-liða úrslitum.

Í liði eru þau Hannes Þór Halldórsson og Anna Lára Orlowska og í liði Þórs mætti parið Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson.

Það má með sanni segja að viðureignin hafi verið æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokaspurningunni.

Þá var staðan jöfn og spurt var um orð. Rétta svarið kom hjá öðru liðinu eftir fyrstu vísbendingu og var það í raun gisk sem skilaði öðru liðinu áfram í undanúrslitin.

Klippa: Giskaði á rétt svar og kom liðinu áfram í undanúrslitin





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.