Rúnar að snúa gengi Leipzig við Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. nóvember 2022 20:00 Rúnar Sigtryggsson tók óvænt við sem þjálfari Leipzig á dögunum. Vísir/Vilhelm Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson var markahæsti maður vallarins með níu mörk er Leipzig vann öruggan tíu marka sigur gegn botnliði Hamm-Westfalen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 33-23. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur liðið nú unnið tvo leiki í röð eftir að Rúnar Sigtryggsson tók við liðinu.
Heimamenn í Leipzig settu tóninn snemma og náðu þriggja marka forskoti strax í upphafi leiks. Liðinu gekk þó illa að hrista gestina af sér lengst af í fyrri hálfleik, en náði þó sjö marka forystu á lokamínútum hálfleiksins og staðan var 18-11 þegar gengið var til búningsherbergja. Leipzig náði svo tíu marka forystu um miðjan síðari hálfleikinn og eftirleikurinn því nokkuð auðveldur. Liðið vann að lokum öruggan tíu marka sigur, 33-23, og liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð. Eins og áður segir var Viggó Kristjánsson markahæsti maður vallarins með níu mörk fyrir Leipzig. Liðið situr nú í 11. sæti deildarinnar með átta stig eftir 12 leiki, en Hamm-Westfalen situr enn á botninum með aðeins tvö stig. Þá skoraði Ýmir Örn Gíslason þrjú mörk í öruggum níu marka sigri Rhein-Neckar Löwen gegn Lemgo, 37-28. Hákon Daði Styrmisson skoraði fjögur fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðarsson eitt er liðið gerði 30-30 jafntefli gegn Arnóri Þór Gunnarssyni og félögum hans í Bergischer, en Arnór komst ekki á blað. Að lokum skoraði Elvar Örn Jónsson tvö og Arnar Freyr Arnarsson eitt fyrir MT Melsungen er liðið vann sjö marka sigur gegn Stuttgart, 33-26.
Þýski handboltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira