Viggó fór á kostum í fyrsta leik Rúnars | Gummersbach hafði betur í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. nóvember 2022 19:53 Viggó Kristjánsson var öflugur í liði Leipzig í kvöld. EPA-EFE/Khaled Elfiqi Nýliðar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar og með þá Elliða Snæ Vignisson og Hákon Daða Styrmisson innanborðs, unnu virkilega sterkan tveggja marka sigur er liðið tók á móti Teiti Erni Einarssyni og félögum hans í Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-29. Þá fór Viggó Kristjánsson á kostum er Leipzig vann nauman eins marks sigur gegn Wetzlar í fyrsta leik liðsins undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en gestirnir í Flensburg náðu þó mest þriggja marka forskoti í tvígang áður en flautað var til hálfleiks. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var 13-15, Flensburg í vil. Gestirnir höfðu yfirhöndina lengst af í síðari hálfleiknum, en í stöðunni 21-24 skoruðu heimamenn fjögur mörk í röð og náðu forystunni í fyrsta skipti síðan um miðbik fyrri hálfleiksins. Heimamenn í Gumemrsbach létu forskotið aldrei af hendi eftir það og unnu að lokum virkilega sterkan tveggja marka sigur, 31-29. Ellið Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn og Hákon Daði Styrmisson tvö. Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk fyrir gestina. Gummersbach situr nú í áttunda sæti deildarinnar með 13 stig eftir 11 leiki, tveimur stigum á eftir Flensburg sem situr í fimmta sæti. Þá fór Viggó Kristjánsson algjörlega á kostum er Leipzig vann nauman sigur gegn Wetzlar á sama tíma, 25-24. Leikurinn var fyrsti leikur Leipzig undir stjórn Rúnars Kristinssonar, en Viggó skoraði tíu mörk fyrir gestina og var markahæsti maður vallarins. Að lokum vann HC ERlangen öruggan sex marka sigur gegn Hamburg, 35-29, en Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Þýski handboltinn Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Dagskráin: Gaz-leikur allra Gaz-leikja og Þjóðadeildin af stað á ný Sport Fleiri fréttir „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Sjá meira