„Aldrei liðið jafn illa og þegar ég missti hann“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. nóvember 2022 10:31 Anna Dís mælir með því fyrir alla að eignast hund. Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.
Í þættinum í gærkvöldi var rætt við hundaeigendur sem leggja mikið á sig til að koma hundum sínum í gegnum hundasýningar. Gríðarlegur tími fer í áhugamálið og þarf að baða, greiða og kemba hundana í hverri viku sem tekur allt upp í tvær klukkustundir á hvern hund. Einn viðmælandinn átti til að mynda fimm hunda og fara 10 klukkustundir í viku í það að halda hundunum glæsilegum. „Sama hvar þú ert í lífinu og hvort þú sért dapur eða glaður, þá er hundurinn alltaf með þér. Hann dregur þig út, kúrir hjá þér eða liggur hjá þér eða situr hjá þér. Sama hvernig þú ert, ef þú ert til dæmis veikur þá skynjar hundurinn það og að eiga einhvern svoleiðis er allt of dýrmætt,“ segir Sigríður Margrét Jónsdóttir sem á einmitt fimm hunda. „Ég held að mér hafi aldrei liðið jafn illa og þegar ég missti hann. Sumir hundar eru bara eins og sálufélagar manns. En góðu tímarnir eru svo miklu fleiri en þessi slæmi þegar þeir fara frá manni. Ég mæli með þessu fyrir alla,“ segir Anna Dís Arnarsdóttir, sem rekur hundaræktunina Mystic Glow ásamt systur sinni. Klippa: Aldrei liðið jafn illa og þegar ég missti hann
Afbrigði Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira