Innlent

Býst við öðru gosi áður en langt um líður

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir staðsetningu síðustu tveggja gosa einstaklega heppilega. 
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir staðsetningu síðustu tveggja gosa einstaklega heppilega.  Vísir/Vilhelm

Eldfjallafræðingur býst við nýju gosi í Fagradalsfjalli áður en langt um líður. Staðsetning síðustu tveggja eldgosa hafi verið mikil heppni en slíkt verði ekki næst þar sem búið er að fylla alla dali. Hraunið mun þá flæða beint af fjallinu.

Fjöldi ferðamanna leggur leið sína á hverjum degi að Fagradalsfjalli til að skoða gíga og hraun sem mynduðust í eldgosunum tveimur þar. Fátt bendir til þess að þar gjósi alveg á næstunni en Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur er þó á því að gjósa muni þar á ný.

„Miðað við það sem við vitum um eldvirkni á Reykjanesskaga þá er þetta það sem við köllum eldar. Þannig við erum með tímabil, tíu, tuttugu, þrjátíu ár þar sem það eru tíð gos og í eldum þá gýs sama kerfið nokkrum sinnum,“ segir Þorvaldur sem býst við gosi áður en langt um líður.

„Við getum heldur ekki útilokað að Reykjanesið sjálft fari af stað. Þá erum við að tala um svæðið við Reykjanesvitann og þar í kring. Krýsuvíkin gæti farið líka af stað og Brennisteinsfjöllin gætu líka farið af stað.“

Hann segir staðsetningu síðustu tveggja gosa því hafa verið einstaklega heppilega.

„Við hefðum ekki getað verið heppnari með staðsetningu vegna þess að gosið kemur upp inni í þessum fjallaklasa sem við köllum Fagradalsfjall og hraunið rennur niður í lokaða dali og fyllir þessa dali og ef það kemur aftur gos í Fagradalsfjalli þá verðum við ekki svona heppin því það er búið að fylla eiginlega allt geymslurýmið þarna. Þannig að næsta gos þá er alveg næsta ljóst að hraunið flæðir bara af fjallinu og svo bara spurning hvort það fer til suðurs í átt að Suðurstrandavegi eða í einhverja aðra átt,“ segir Þorvaldur að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×