Breytilegar áttir vegna tveggja smálægða nálægt landinu Atli Ísleifsson skrifar 31. október 2022 07:25 Hiti verður á bilinu tvö til tíu stig. Vísir/Vilhelm Tvær smálægðir verða nálægt landinu í dag. Önnur þeirra ferðast meðfram austurströndinni til norðurs og hin skammt vestur af landinu, sömuleiðis til norðurs. Staðsetning lægðanna veldur breytilegum vindáttum og vindhraða.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í stuttu máli verði suðlæg eða breytileg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, hvassast norðaustantil framan af degi en á Suðvesturlandi seinnipartinn. Reikna má með rigningu eða súld öðru hvoru í flestum landshlutum. Það sé enn frekar milt í veðri með hita á bilinu tvö til tíu stig. „Á morgun snýst í austlæga átt 5-10 og léttir til en lítilsháttar væta verður norðvestantil í fyrstu. Það bætir í vind seinnipartinn og fer að rigna syðst seint annað kvöld. Hiti breytist lítið. Það snýst í norðlæga átt 5-13 á miðvikudag með rigningu víða, og sums staðar slyddu fyrir norðan. Svo dregur úr úrkomu sunnantil seinnipartinn. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.“ Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austlæg átt 5-13 m/s, skýjað með köflum og þurrt að mestu en dálítil rigning eða slydda austanlands um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig en kringum frostmark norðaustantil. Á miðvikudag: Norðlæg átt 8-13 og rigning eða slydda norðan- og austanlands en úrkomuminna sunnan- og vestantil. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á fimmtudag: Norðlæg átt 8-15 og rigning eða slydda með köflum, snjókoma inn til landsins en þurrt að kalla sunnan- og vestanlands. Hiti víða 0 til 5 stig. Á föstudag: Austlæg átt, skýjað og sums staðar smá rigning eða slydda en yfirleitt léttskýjað suðvestantil. Fremur svalt í veðri. Á laugardag: Norðaustlæg átt með dálítilli rigningu eða slyddu en úrkomulítið suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Norðanátt, skýjað og sums staðar rigning eða súld en bjart að mestu á Suðvesturlandi. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira