Núnez fékk hughreystandi skilaboð frá Suárez eftir rauða spjaldið gegn Palace Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. október 2022 11:30 Darwin Núnez og Luis Suárez fagna marki í landsleik með Úrúgvæ. getty/Sebastian Frej Darwin Núnez, framherji Liverpool, fékk skilaboð frá landa sínum, Luis Suárez, eftir að hann var rekinn af velli í leik Liverpool og Crystal Palace.
Nunez fékk rautt spjald í öðrum deildarleik sínum með Liverpool fyrir að skalla Joachim Andersen, varnarmann Palace. Hann var í kjölfarið dæmdur í þriggja leikja bann. Núnez hefur greint frá því að hann hafi fengið skilaboð frá öðrum úrúgvæskum framherja sem hefur spilað fyrir Liverpool, Suárez, eftir atvikið gegn Palace. Fyrirfram væri kannski varhugavert að hlusta of mikið á Suárez þegar kemur að ráðleggingum að hafa stjórn á skapi sínu en Núnez var ánægður með þær. „Hlustaðu á hálfvita eins og mig sagði hann við sig. Ég er mjög þakklátur fyrir skilaboðin og umhyggjuna sem hann sýndi mér,“ sagði Núnez. „Þetta var mjög gott því margir hefðu ekki haft fyrir því að taka upp símann eða senda skilaboð en þetta var mjög mikilvægt fyrir mig. Luis er fyrirmynd og goð um allan heim. Ég er bara að byrja en hann þekkir þetta allt því hann hefur spilað fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Hann sagði mér að svona lagað gerðist í öllum leikjum, leikmenn reyndu að espa mig upp og sparka í mig og ég yrði að vera sterkur.“ Núnez skoraði í 0-3 sigri Liverpool á Ajax í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Hann hefur skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum sínum og alls sex mörk fyrir Rauða herinn. Liverpool keypti Núnez frá Benfica fyrir um 85 milljónir punda í sumar. Núnez og Suárez verða væntanlega báðir í landsliðshópi Úrúgvæ á HM í Katar. Úrúgvæar eru í riðli með Ganverjum, Portúgölum og Suður-Kóreumönnum.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira