Viðskipti erlent

Net­flix bætti upp á­skrif­enda­tap ársins á þriðja árs­fjórðungi

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Netflix hafði tapað um það bil milljón áskrifenda á árinu.
Netflix hafði tapað um það bil milljón áskrifenda á árinu. GETTY/JAKUB PORZYCKI

Netflix bætti við sig meira en tveimur milljónum áskrifenda á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Bætingin kemur eflaust einhverjum á óvart en streymisveitan missti tvö hundruð þúsund áskrifendur á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og nærri eina milljón áskrifenda á öðrum ársfjórðungi.

Áskrifendatapið sem streymisveitan upplifði á öðrum ársfjórðungi er sögð sú stærsta í sögu fyrirtækisins en búist hafi verið við meira tapi. Brotthvarf áskrifenda á fyrsta ársfjórðungi þessa árs sagði Netflix hafa verið meðal annars vegna stríðsins í Úkraínu og þeirrar staðreyndar að fólk deili lykilorðum að reikningum sín á milli.

New York Times greina frá því að streymisveitan hafi bætt við sig 2,4 milljónum áskrifenda á þriðja ársfjórðungi og stæri sig því af 223 milljónum áskrifenda. Meirihluti nýju áskrifenda Netflix komi ekki frá Bandaríkjunum. Samkvæmt Wall Street Journal býst streymisveitan við því að bæta við sig 4,5 milljónum áskrifenda á fjórða ársfjórðungi þessa árs.

Gróði fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungnum hafi verið 1,4 milljarðar Bandaríkjadala eða 206,3 milljarðar íslenskra króna.

Miklar sviptingar virðast á næsta leyti hjá fyrirtækinu þar sem það hefur ákveðið að byrja að sýna áskrifendum sínum auglýsingar. Ekki munu allir þurfa að horfa á þær en boðið verði upp á ódýrari áskriftarleið þar sem auglýsingar verði sýndar. Nýja áskriftarleiðin muni kosta áskrifendur 6,99 Bandaríkjadali eða 1.024 íslenskar krónur, þess  má geta að dýrasta áskriftarleiðin kostar 19,99 Bandaríkjadali sem eru 2.930 krónur. 

Ódýrasta áskrifarleiðin verður til þess að byrja með aðeins aðgengilg í tólf löndum en það eru Bandaríkin, Bretland, Ástralía, Frakkland, Japan, Mexíkó, Spánn, Kórea, Brasilía, Kanada og Þýskaland. 


Tengdar fréttir

Misstu milljón notendur en virðið hækkar samt

Streymisveitan Netflix missti 970 þúsund áskrifendur á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er stærsti áskrifendamissir fyrirtækisins frá því það var stofnað fyrir 25 árum. Þrátt fyrir það er uppgjörið talið vera jákvætt.

Netflix leitar í kvikmyndahúsin

Forsvarsmenn streymisveitunnar Netflix hafa ákveðið að birta myndina Gloass Onion: A Knives Out Mystery í kvikmyndahúsum. Það verður gert mánuði áður en myndin verður aðgengileg á streymisveitunni sjálfri en myndin er eins og nafnið gefur til kynna framhaldsmynd Knives Out.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×