Heimilislausir karlmenn segja borgina ekki hafa veitt þeim nein svör eða brugðist við fyrirhuguðum vanda þeirra í vetur á nokkurn hátt. Þeir kalla eftir því að neyðarskýli verði opin á daginn og neituðu að fara úr einu slíku í morgun til að vekja athygli á málstað sínum. Málið var tekið fyrir á fundi borgarstjórnar í dag og við heyrum nýjustu tíðindi af því í beinni útsendingu.
Krakkar í fimmta bekk í Grandaskóla segjast alltaf stressuð fyrir leshraðapróf og skilja ekki alveg tilganginn með því að lesa hratt og upphátt. Kristín Ólafsdóttir fréttamaður okkar ræddi í dag við krakkana og þreytti sjálf hið umdeilda próf. Við sjáum hvernig það fór í fréttatímanum.
Þá kynnum við okkur nýjar rannsókn um eyðingu ósonlagsins, heyrum í virkum notenda strætó sem vill alls ekki kveðja næturferðir og kíkjum á glænýtt hjúkrunarheimili á Selfossi sem íbúar virðast hæstánægðir með.
Þetta og fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar og Stöðvar 2 klukkan 18:30.
Hlusta má á kvöldfréttir í beinni í spilaranum hér að ofan.