Samherji Dagnýjar fékk rasísk skilaboð eftir slagsmál Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2022 11:01 Hawa Cissoko kýlir Söruh Mayling í leik Aston Villa og West Ham United um helgina. getty/Harriet Lander Hawa Cissoko, leikmaður West Ham United, fékk rasísk skilaboð og hótanir eftir að hún var rekinn af velli gegn Aston Villa í ensku kvennadeildinni á laugardaginn.
Cissoko fékk rautt spjald undir lok leiks fyrir að kýla Söruh Mayling, leikmann Villa. Hún lenti síðan í útistöðum við varamenn Villa þegar hún gekk af velli. Ekki nóg með það heldur var Paul Konchesky, þjálfari West Ham, einnig rekinn af velli fyrir átök við þjálfarateymi Villa. Málinu var ekki lokið því á laugardagskvöldið greindi Cissoko frá því að henni hefðu borist hótanir. Samkvæmt Daily Mail fékk Cissoko einnig rasísk skilaboð eftir leikinn gegn Villa. Dagný Brynjarsdóttir kom West Ham á bragðið gegn Villa strax á 2. mínútu. Honoka Hayashi skoraði annað mark liðsins tólf mínútum seinna og Hamrarnir voru 0-2 yfir í hálfleik. Alisha Lehmann klúðraði vítaspyrnu fyrir Villa á 73. mínútu en fjórum mínútum síðar minnkaði Kenza Dali muninn í 1-2. Nær komumst heimakonur þó ekki. West Ham og Villa eru bæði með sex stig í ensku kvennadeildinni en Hamrarnir hafa leikið einum leik meira. Næsti leikur West Ham er gegn Reading á sunnudaginn. Cissoko, sem er 25 ára, kom til West Ham frá Soyaux í Frakklandi fyrir tveimur árum. Hún hefur leikið sjö leiki fyrir franska landsliðið.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Fótbolti Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sport Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Íslenski boltinn Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Fótbolti Fleiri fréttir Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Sjá meira