Innlausnir í hlutabréfasjóðum drifnar áfram af útflæði fjárfesta hjá Akta
![Kaup almennings á hlutdeildarskírteinum í hlutabréfasjóðum jókst talsvert á árunum 2020 og 2021 og nema eignir heimila í slíkum sjóðum í dag um 46 milljörðum króna borið saman við 20 milljarða í árslok 2019.](https://www.visir.is/i/76C52D968E160A8CE80067FCFAE02EDBE090787E0507495C15A7708DAEFCEAEB_713x0.jpg)
Meirihluti stærstu hlutabréfasjóða landsins hafa horft upp á hreint útflæði fjármagns á árinu samhliða því að fjárfestar flýja áhættusamari eignir á tímum þegar óvissa og miklar verðlækkanir hafa einkennt hlutabréfamarkaði. Úttekt Innherja leiðir í ljós að innlausnir á fyrri árshelmingi voru einkum drifnar áfram af sölu hlutabréfafjárfesta hjá stærsta sjóðnum í stýringu Akta.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/146BA48CF9FF86B8D373005523103090F0F3EAF8F0CD054429D9C1361DCE1382_308x200.jpg)
Vísbendingar um að markaðurinn hafi „tekið alltof skarpa dýfu“
Staðan á hlutabréfamarkaði hefur umturnast á síðustu tólf mánuðum. Fyrir um ári mátti sjá merki þess að markaðurinn væri búinn að ofrísa, meðal annars út frá þróun peningamagns í umferð, en núna eru vísbendingar um hið gagnstæða og verðmöt gefa til kynna að meirihluti félaga í Kauphöllinni séu verulega vanmetin, að sögn hlutabréfagreinenda.
![](https://www.visir.is/i/624E49D8E6EE1FCDD616BAA10A1BB6FFDB46FD74CE9FB04FE688162DCF0AC46D_308x200.jpg)
Eignamarkaðir ættu að njóta þess að Ísland sé í öfundsverðri stöðu
Sjóðstjóri fjárfestingasjóðsins Algildi segist ekki vera „mjög bjartsýnn“ á erlenda eignamarkaði um þessar mundir. Staðan hérlendis sé mun betri. Ísland sé í öfundsverðri stöðu og því ætti eignamörkuðum hérlendis að vegna betur en margra annarra landa sem standi verr að vígi.
![](https://www.visir.is/i/78EF39416A9C70E92DF524EC75F5AC00EEA52099558A3898A8DABCED7CB997CF_308x200.jpg)
Hægir á innlausnum fjárfesta úr innlendum hlutabréfasjóðum
Fjórða mánuðinn í röð dró lítillega úr innlausnum fjárfesta úr íslenskum hlutabréfasjóðum en stöðugt útflæði hefur verið úr slíkum sjóðum, rétt eins og í öðrum verðbréfasjóðum, samtímis miklum óróa og verðlækkunum á mörkuðum á síðustu mánuðum. Frá því í lok febrúar, þegar innrás Rússa hófst í Úkraínu, nemur nettó útflæði úr verðbréfasjóðum samanlagt um 23 milljörðum.