Gísli hafði betur í öðrum af tveimur Íslendingaslögum í þýsku úrvalsdeildinni Atli Arason skrifar 9. október 2022 16:30 Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg. Getty/Hendrik Schmidt Það voru tveir Íslendingaslagir á dagskrá í þýska handboltanum í dag. Annar endaði með jafntefli á milli Gummersbach og Leipzig á meðan að Magdeburg vann fjögurra marka sigur á Melsungen.
Magdeburg 27-23 Melsungen Arnar Freyr Arnarsson, leikmaður Melsungen, var næst markahæsti leikmaður vallarins í öðrum af tveimur Íslendingaslögum dagsins en Arnar skoraði sex mörk úr sex skotum í 27-23 tapi Melsungen á útivelli gegn Magdeburg. Elvar Örn Jónsson, samherji Arnars, bætti við tveimur mörkum úr fjórum skotum á meðan Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg skoraði þrjú mörk úr sjö skotum. Hollendingurinn Kay Smits var hins vegar markahæstur með átta mörk úr 15 tilraunum. Gummersbach 36-36 Leipzig Gummersbach og Leipzig gerðu jafntefli í hinum Íslendingaslagnum í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Hákon Daði Styrmisson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach á meðan samherji hans Elliði Snær Viðarsson bætti við tveimur. Viggo Kristjánsson skoraði á sama tíma þrjú mörk fyrir Leipzig. Dominik Mappes, leikmaður Gummersbach, var hins vegar markahæstur allra leikmanna á vellinum með 10 mörk úr 14 skotum. Lemgo 26-21 Flensburg Teitur Örn Einarsson, leikmaður Flensburg, komst ekki á blað þegar lið hans tapaði á útivelli gegn Lemgo, 26-21. Fuchse Berlin 34-26 Kiel Þá vann Füchse Berlin átta marka sigur á THW Kiel í toppslagnum, 34-26. Mijajlo Marsenic, leikmaður Berlin, var markahæsti leikmaður vallarins með níu mörk. Eftir leiki dagsins er Magdeburg í 4. sæti deildarinnar með 12 stig. Flensburg kemur næst af Íslendingaliðunum en Flensburg er með níu stig í 7. sæti. Gummersbach er svo með jafn mörg stig og Flensburg í 8. sætinu en Leipzig og Melsungen eru í öllu verri málum með aðeins fjögur stig í 13. og 14. sæti deildarinnar.
Þýski handboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira