Innlent

Íbúar sofi með lokaða glugga

Bjarki Sigurðsson skrifar
Eldur logar í nokkrum bílum við húsnæðið.
Eldur logar í nokkrum bílum við húsnæðið. Tristana Sól Kristjánsdóttir

Lögreglan á Austurlandi biður fólk á Egilsstöðum um að hafa glugga lokaða bæði í kvöld í nótt til að tryggja að reykur berist ekki inn í hús eftir stórfelldan bruna í bænum. Búið er að ná tökum á brunanum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar. Þar segir að nú sé unnið að því að slökkva í glæðum en gera megi ráð fyrir því að slökkvistarf haldi áfram fram á kvöld. Vegum í kringum húsnæðið sem brann var lokað og verðum þeim haldið lokuðum eitthvað áfram.

Veginum í átt að húsnæðinu var lokað vegna brunans.Benjamín Ingi Böðvarsson

Rannsókn hefst á morgun á upptökum brunans en talið er að hann hafi byrjað í þvottahúsi húsnæðis Vasks. Vaskur er þvottahús, efnalaug og verslun sem selur hreinlætisvörur, skrifstofuvörur, hljóðfæri, víngerðarefni og fleira.

Aðgerðarstjórn þakkar öllum er komu að björgunarstörfum, aðstoð og að skipulagi aðgerða. Meðal viðbragðsaðila voru slökkvilið Múlaþings og Fjarðabyggðar, björgunarsveitin Hérað, Heilsugæsla HSA og lögregla.


Tengdar fréttir

Opna þakið á þeim hluta sem brennur ekki

Mikill eldur logar í húsnæði Vasks á Egilsstöðum. Vaskur er þvottahús, efnalaug og verslun með hreinlætisvörur, skrifstofuvörur, hljóðfæri, víngerðarefni, búsáhöld, leikföng og hannyrðavörur. Þvottahús er í húsinu þar sem talið er líklegt að eldurinn hafi komið upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×