Lífið

Berdreymi framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna

Elísabet Hanna skrifar
Berdreymi_KeyStill_JoinMotionPictures_By_Sturla Brandth Grøvlen
Sturla Brandth Grøvlen

Framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2023 er kvikmyndin Berdreymi eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson. Þetta tilkynnti Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra á Eddunni fyrr í kvöld.

Berdreymi segir frá Adda, sem er unglingsstrákur í Reykjavík, og er alinn upp af móður með skyggnigáfu. Einn daginn ákveður Addi að taka eineltisfórnarlamb undir sinn verndarvæng og inn í vinahóp slagsmálahunda. Strákarnir í hópnum leika sér að valdbeitingu og ofbeldi en kynnast einnig djúpri vináttu. Myndin er önnur kvikmynd Guðmundar Arnars í fullri lengd á eftir hinni margverðlaunuðu Hjartasteinn.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að einstök frammistaða og hugrekki ungra leikara eigi sérstakt lof skilið fyrir stóran þátt sinn í áhrifamætti verksins. „Tónn, andi og tilfinning frásagnarinnar nýtir möguleika formsins á eftirtektarverðan hátt sem skilar sér í hrárri og sterkri kvikmynda upplifun,“ segir þar einnig.

Berdreymi var heimsfrumsýnd á Berlinale í febrúar og hlaut þar einnig verðlaun sem besta evrópska kvikmyndin í sínum flokki frá Samtök Evrópska Kvikmyndahúsa.

Frá Berlinale heimsfrumsýningunni á Berdreymi.Aðsent

Guðmundur Arnar skrifaði handritið og með helstu hlutverk fara Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Benediktsson, og Snorri Rafn Frímannsson. Einnig spila þau Aníta Briem, Ólafur Darri Ólafsson og Ísgerður Gunnarsdóttir stór hlutverk á skjánum.


Tengdar fréttir

Berdreymi verðlaunuð í Póllandi

FIPRESCI hafa valið Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson sem bestu kvikmyndina í aðal keppni kvikmyndahátíðarinnar OFF CAMERA í Póllandi.

Berdreymi vann til verðlauna í Sarajevó

Kvikmyndin Berdreymi vann til verðlauna á Omladinski-kvikmyndahátíðinni sem fram fór í Sarajevó í Bosníu og Hersegóvínu í síðustu viku. Leikarinn Blær Hinriksson hlaut einnig verðlaun á hátíðinni.

Líður eins og stjörnu í Sarajevó

Blær Hinriksson vann í vikunni til verðlauna á kvikmyndahátíð í Sarajevó í Bosníu og Hersegóvínu. Blær fékk verðlaun fyrir besta unga leikara í kvikmyndaflokki fyrir myndirnar Hjartastein og Berdreymi.

Berdreymi: Strákarnir okkar eru ekki í lagi

Ný íslensk kvikmynd, Berdreymi, var frumsýnd sl. föstudag. Leikstjóri og höfundur hennar er Guðmundur Arnar Guðmundsson, þetta er hans önnur kvikmynd, en áður hefur hann gert Edduverðlaunamyndina Hjartastein. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.