Lífið

Met slegið í Kviss

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörkuviðureign í Kviss.
Hörkuviðureign í Kviss.

Sextán liða úrslitin halda áfram í Kviss á Stöð 2 en á laugardaginn mættust Leiknismenn og Valsmenn í hörku viðureign.

Leiknir vann Val í Bestudeild karla í gærkvöldi og spurning hvernig helgin var í heild fyrir félagið gegn Valsmönnum.

Í liði Leiknis voru þau Hannes Þór Halldórsson og Anna Lára Orlowska en Hannes var í Kvissliði Vals í fyrstu þáttaröð en hefur nú skipt yfir í uppeldisfélagið.

Hjá Val voru þeir Jóhann Kristófer Stefánsson og Kristófer Acox liðsfélagar.

Kristófer var klæddur í Valsmarkvarðarbúning Hannesar sem hann lék í á sínum tíma.

Met var slegið í þættinum á laugardaginn en annað liðið svaraði öllum hraðaspurningunum 15 rétt. Fullt hús stiga sem hefur aldrei áður gerst.

Ef þú hefur ekki horft á þáttinn og vilt spara hann, ekki horfa þá á innslagið hér að neðan.

Klippa: Met slegið í Kviss





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.