Í myndbandinu skín einstakur stíll Bjarkar í gegn en hún er klædd í stórbrotna kjóla, þar á meðal ævintýra prinsessu kjól og glæsilegan grænan síðkjól. Atburðarásin virðist eiga sér stað undir sjávarborðinu og umhverfið er framandi.
Hér má sjá myndbandið:
Lag til að spila hátt
Björk deildi myndbandinu á Instagram síðu sinni fyrr í dag þar sem hún skrifaði meðal annars:
„Ég er svo glöð að deila með ykkur fyrsta myndbandinu á plötunni minni við lagið atopos. Þar sem bassinn í laginu er gríðarlega mikilvægur gætuð þið þá vinsamlegast spilað lagið hátt?“
Verðmætt listrænt samband
Viðar Logi var leikstjóri myndbandsins og þakkaði Björk honum fyrir samvinnuna.
„Kæri Viðar Logi. Takk fyrir alla þína gleðilegu fagnaðar orku og fyrir að vera til í að takast á við allar þær áskoranir sem ég kastaði til þín. Þú yfirfærðir þær allar á Viðar Loga sýnina. Ég hefði ekki getað hugsað mér betri sjónrænan félaga í faraldrinum. Ég er svo ofboðslega þakklát fyrir ferðalag okkar, ég trúi hvað við höfum gert mikið af hlutum síðustu þrjú ár. Get ekki beðið eftir að deila því með heiminum.“
Edda Guðmundsdóttir sá um stíliseringu en hún hefur unnið með Björk í áratugi. Í myndbandinu má meðal annars sjá plötusnúð og sex klarinett leikara í orkumiklu flæði.
Hlaðvarp
Björk fór af stað með tónlistarhlaðvarp nú í lok ágúst þar sem hún setur reglulega út þætti tengda lögum hennar og nýju plötunni. Hlaðvarpið heitir björk: sonic symbolism en um hlaðvarpið segir Björk meðal annars:
„Flest okkar fara í gegnum tímabil í lífinu sem taka rúmlega þrjú ár og það er engin tilviljun að það taki einnig svipaðan tíma að búa til plötu eða kvikmynd. Þetta hlaðvarp er tilraun til að grípa hvaða skap, tóna og takt við víbrum á við hvert og eitt tímabil.“