Innlent

Votlendið, húsnæðiskerfið og seðlabankastjóri á Sprengisandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.

Sprengisandur verður að mestu með hefðbundnu sniði í dag. Rætt verður um endurheimt votlendis, lífeyrissjóði og uppbyggingu stöðugs húsnæðiskerfi, uppbyggingu á Austurlandi og þá mun Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fara yfir stöðuna í efnahagsmálum.

Þar til viðbótar verður nýtt íslenskt lag frumflutt í þættinum og er það í fyrsta sinn. Lagið er eftir þá Sigurð Bjólu og Björgvin Gíslason en sá síðarnefndi er maðurinn á bak við titillag þáttarins.

Ingunn Agnes Kro, formaður stjórnar Votlendissjóðs, og Árni Bragason, landgræðslustjóri, eru fyrstu gestir Kristjáns Kristjánssonar í dag. Þau ætla að ræða votlendið, endurheimt þess, ávinning af því að græða landið og eitt og annað sem þessu viðvíkur.

Þar næst mætir Ólafur Sigurðsson en hann er framkvæmdastjóri Birtu, eins stærsta lífeyrissjóðs landsmanna. Ólafur ætlar að svara því hvort lífeyrissjóðir geti leikið lykilhlutverk í uppbyggingu á stöðugu húsnæðiskerfi eins og kallað hefur verið eftir og, ekki síður, hvort það geti skipt máli í næstu kjarasamningum.

Ásgeir mætir svo á tólfta tímanum og fer yfir efnahagsmálin frá bæjardyrum Seðlabankans. Hann hækkar vexti hratt og mikið þessa dagana.

Síðasti gestur Kristjáns er Ívar Ingimarsson en hann hefur barist mjög fyrir uppbyggingu Austurlandsins og lagt fram hugmyndir um hana. Sterkt Austurland er ávinningur fyrir allt Ísland að hans mati.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×