Fulham að fá fyrrverandi leikmann Arsenal og Chelsea Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. ágúst 2022 19:46 Willian náði ekki að heilla hjá Arsenal, en fær nú annað tækifæri í ensku úrvalsdeildinni. Vísir/Getty Brasilíski miðjumaðurinn Willian er að öllum líkindum á leið í ensku úrvalsdeildina á ný eftir árs fjarveru. Þessi fyrrverandi leikmaður Arsenal og Chelsea er nú líklega á leið til Fulham.
Willian hefur undanfarið ár leikið með uppeldisfélagi sínu Corinthians eftir það sem mætti kalla mishepnaða veru hjá Arsenal. Þessi 34 ára miðjumaður fékk þó samningi sínum hjá Corinthians rift eftir að hann sagði frá því að honum og fjölskyldu hans hafi borist líflátshótanir á samfélagsmiðlum. Willian er nú á leið í læknisskoðun hjá enn einu Lundúnaliðinu, en hann mun að öllum líkindum ganga í raði Fulham á næstu dögum. Vegna samningsstöðu leikmannsins gæti hann orðið leikmaður félagsins eftir að félagsskiptaglugginn lokar síðar í vikunni. Medical scheduled today for Willian in order to become new Fulham player on free transfer after contract terminated with Corinthians. ⚪️🇧🇷 #FulhamFC Willian wanted to go back to the Premier League and it's now really close. pic.twitter.com/pAQ6kZYYud— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 30, 2022 Willian lék í sjö ár í treyju Chelsea áður en hann gekk í raðir Arsenal. Fyrir Chelsea lék hann 234 deildarleiki og vann fimm titla, þar af tvo Englandsmeistaratitla. Hann færði sig svo um set í Lundúnum og skrifað undir þriggja ára samning við Arsenal árið 2020, en samningi hans við félagið var rift ári síðar þar sem hann náði ekki að setja mark sitt á liðið. Þá var Willian fastamaður í brasilíska landsliðinu frá árinu 2011, en á átta ára landsliðsferli sínum lék hann 70 landsleiki og skoraði í þeim níu mörk.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira