Hvasst og rigning suðvestantil en hiti nær 22 gráðum norðanaustantil Atli Ísleifsson skrifar 30. ágúst 2022 07:24 Seinni partinn fer svo að lægja, fyrst vestantil, en síðan um allt land í nótt og dregur vel úr úrkomunni. Vísir/Vilhelm Allhvöss suðaustanátt skellur á suðvestur- og vesturhluta landsins í dag með talsverðri rigningu. Um landið norðaustanvert stefnir hins vegar í bjartan og fallegan dag þar sem hæstu hitatölur fara líklega í 22 stig.
Þar mun þó einnig bæta í vindinn þar þegar líður á daginn. Seinni partinn fer svo að lægja, fyrst vestantil, en síðan um allt land í nótt og dregur vel úr úrkomunni. Á vef Veðurstofunnar segir tíðindalítið veður næturinnar muni ekki staldra lengi við því næsta lægð kemur á morgun með mjög svipuðu veðri og spáir í dag, það er allhvassri suðlægri átt og talsverðri rigningu sunnan- og vestantil. Þegar líður á morgundaginn snýst í heldur hægari vestlæga átt og dregur smám saman úr úrkomu. Tilefni er til að minna ferðalanga á að við fjöll geti hvassir vindstrengir verið varasamir ökutækjum sem taki á sig mikinn vind. Spákot fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Gengur í sunnan 10-18 m/s með rigningu víða, jafnvel talsverð á köflum, en þurrt að kalla norðaustanlands. Snýst í heldur hægari vestlæga átt og dregur úr vætu þegar líður á daginn, fyrst vestantil. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og skúrir í flestum landshlutum. Hiti 7 til 12 stig. Á föstudag: Norðan 5-13 m/s og rigning af og til um landið norðanvert. Lengst af léttskýjað sunnan heiða, en líkur á stöku skúr syðst. Hiti 5 til 12 stig, mildast á Suðurlandi. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Útlit fyrir frekar hæga breytilega átt og bjart með köflum. Hiti 8 til 15 stig.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira