Öflugur úrkomubakki fylgir lægð sem nálgast nú landið Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2022 07:24 Útlit er fyrir talsverða eða mikla úrkomu á Tröllaskaga og á Norðurlandi eystra. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd fyrir austan land og þokast miðja hennar nú til norðvesturs í átt að Langanesi. Lægðinni fylgir öflugur úrkomubakki og úr honum mun rigna norðan- og austanlands í dag og útlit er fyrir talsverða eða mikla úrkomu á Tröllaskaga og á Norðurlandi eystra.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að sunnan- og vestanlands sé nú skýjað að mestu og sums staðar rigni dálítið, en þegar líður á daginn ættu að koma göt í skýjahuluna og eitthvað að sjást til sólar. Sunnanlands ætti hiti að ná um sextán gráðum. „Áðurnefndri lægð fylgir einnig norðanátt og má búast við strekkingi eða allhvössum vindi á austanverðu landinu sem getur verið varasamur vindur fyrir ökutæki sem eru viðkvæmust fyrir vindi, t.d. hjólhýsi eða húsbíla. Það er svalt í rigningunni fyrir norðan- og austan, en allt að 16-17 stiga hita syðst á landinu. Á morgun er útlit fyrir léttskýjað og sólríkt veður sunnan- og vestanlands og norðan gola eða kaldi á þeim slóðum. Norðaustantil á landinu verður ákveðnari vindur og rignir fram eftir degi, þó í mun minna mæli en í dag.“ Sunnanlands ætti hiti að ná um sextán gráðum.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan 5-10 m/s sunnan- og vestanlands og léttskýjað. Hiti 12 til 17 stig, hlýjast syðst á landinu. Norðvestan 8-15 og rigning fram eftir degi um landið norðaustanvert, hiti þar 5 til 9 stig. Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 10 til 16 stig yfir daginn. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað sunnan- og vestantil á landinu og sums staðar dálítil væta. Bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Suðaustan 5-13 m/s og súld eða dálítil rigning, en bjartviðri á norðanverðu landinu. Hiti 12 til 19 stig, hlýjast fyrir norðan. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt og vætusamt, en lengst af þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi og hlýtt þar.
Veður Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira