Lífið

Sandy er komin með nýjan Danny

Elísabet Hanna skrifar
Sandy er komin með sinn Danny.
Sandy er komin með sinn Danny. Samsett/Vísir

Jóhanna Guðrún, sem fer með hlutverk Sandy, er komin með nýjan Danny í Grease tónleikasýningunni og er það enginn annar en Magnús Kjartan Eyjólfsson sem tekur við hlutverkinu. Leikstjórn sýningarinnar er í höndum Grétu Salóme.

Skipt um Danny

Tónleikasýningin fer fram í lok október en upphaflega stóð til að hún færi fram fyrir ári síðan. Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, átti á þeim tíma að fara með hlutverk Danny. Þegar fyrir lá að hann væri ekki að fara að vera í hlutverkinu var tilkynnt að annar tónlistarmaður myndi taka við því og nú er ljóst að það er Magnús Kjartan.

Magnús hefur um árabil spilað með hljómsveitinni Stuðlabandinu og tók nýlega við því stóra hlutverki að sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum. 

 Mikill aðdáandi

„Það er algjör draumur að taka þátt", segir Jóhanna Guðrún sem segist hafa verið mikill Grease aðdáandi frá blautu barnsbeini. Hún er spenntust fyrir laginu Hopelessly Devoted To You sem hún segir vera sannkallað söngkonulag og Olivia Newton John heitin gerði ódauðlegt í kvikmyndinni Grease á sínum tíma.

Jóhanna segir að lokum að hún sé spennt fyrir því að geta loksins stigið á sviðið sem Sandy eftir tvö leiðinleg Covid ár, líkt og hún orðaði það. 

Fleiri frábærir tónlistarmenn

Ásamt Jóhönnu Guðrúnu og Magnúsi Kjartani koma einnig fram tónlistarfólkið Stefanía Svavarsdóttir, Júlí Heiðar og Dagur Sigurðsson. Á sviðinu verða dansarar og annað listafólk sem sjá til þess að skemmta gestum. 


Tengdar fréttir

Ingó Veður­guð verður ekki með í upp­setningu Grea­se

Ingólfur Þórarinsson mun ekki fara með hlutverk Danny Zuko í uppsetningu á söngleiknum Grease. Tónleikasýning á söngleiknum átti að fara fram í haust en hefur verið frestað til næsta árs. Þetta staðfestir Björgvin Þór Rúnarsson, einn framleiðandi tónleikanna, í samtali við Vísi. 

Jóhanna Guðrún og Ingó verða eitt þekktasta par sögunnar í Grease

Tónlistarfólkið Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, bregður sér í hlutverk eins þekktasta pars kvikmyndasögunnar í tónleikauppsetningu á söngleiknum Grease í Laugardalshöll laugardagskvöldið 23. október 2021 og laugardagskvöldið 4. september 2021 í íþróttahöllinni á Akureyri.

Minnast Oliviu Newton-John: „Þinn Danny, þinn John“

Söng- og leikkonan Olivia Newton-John hefur kvatt þennan heim og minnast vinir og samstarfsmenn hennar með fögrum orðum. Hún var 73 ára að aldri er hún lést eftir þrjátíu ára baráttu við brjóstakrabbamein.

Stuðlabandið springur út í Brasilíu

Hljómsveitin Stuðlabandið vakti athygli á Kótelettunni nú í júlí þegar þeir tóku hið sígilda barnalag Í larí lei og allt ætlaði um koll að keyra en atriðið var tekið upp á myndband sem birtist á vefsíðunni Youtube. Lagið er upphaflega gefið út af brasilísku tónlistarkonunni XUXA og heitir Ylarie en í kjölfar óvæntrar atburðarrásar birti hún myndbandið af Stuðlabandinu á Instagram síðu sinni. Blaðamaður heyrði í Fannari Frey meðlim Stuðlabandsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.