Watson hefur verið sakaður að brjóta á gott sem heilli starfstétt kvenna í Houston í Texas, en mál hans hafa verið í umræðunni síðustu vikur. Yfir 30 konur hafa sakað hann um kynferðislegt misferli, en allar eru þær nuddkonur. Samkvæmt grein New York Times um málið í júní á Watson að hafa reynt að sannfæra konurnar um að stunda með sér kynlíf og jafnvel þvingað þær til þess.
Upprunalega var Watson aðeins dæmdur í sex leikja bann fyrir 24 mismunandi ásakanir um kynferðislegt misferli.
Cleveland Browns, félag Watson, birti fyrr í dag yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni fyrir hönd leikstjórnandans þar sem hann biðst afsökunar á þeim sársauka sem hann hefur valdið.
„Ég er þakklátur fyrir það að þessu ferli sé lokið og er gríðarlega þakklátur fyrir allan þann stuðning sem ég hef fengið frá Cleveland Browns eftir minn stutta tíma hjá liðinu,“ sagði Watson í yfirlýsingunni.
„Ég biðst enn og aftur afsökunar á þeim sársauka sem þessi staða hefur valdið. Ég tek ábyrgð á mínum ákvörðunum. Ég ætla núna að einbeita mér að því að vera besta útgáfan af sjálfum mér á vellinum og fyrir utan hann, og styðja liðsfélaga mína eins og ég get á meðan ég er utan liðsins. Ég er spenntur fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér hér hjá Cleveland.“
Watson mun geta snúið aftur á völlinn þann 4. desember þegar Cleceland Browns mætir hans fyrrum liði, Houston Texans, en þar lék Watson þegar ásakanirnar komu fram.