Meiðsli Martials auka á hausverk nýja stjórans fyrir fyrsta leik Sindri Sverrisson skrifar 4. ágúst 2022 14:31 Anthony Martial þótti sýna flotta frammistöðu á undirbúningstímabilinu hjá Manchester United. EPA-EFE/JOEL CARRETT Erik ten Hag þarf að finna út úr því hver á að leiða sóknarlínu Manchester United á sunnudag, í fyrsta leik tímabilsins, og nú er ljóst að það verður ekki Frakkinn Anthony Martial.
Martial þótti afar líklegur til að fá sæti í byrjunarliði United gegn Brighton á sunnudaginn eftir að hafa staðið sig vel á undirbúningstímabilinu. Hann var að láni hjá Sevilla seinni hluta síðustu leiktíðar en hefur skorað þrjú mörk fyrir United í vináttuleikjum sumarsins, undir stjórn nýja stjórans. Martial er hins vegar meiddur í læri og missir af leiknum við Brighton, samkvæmt frétt The Athletic. Um minni háttar meiðsli er að ræða en mögulegt er að Martial geti mætt Brentford 13. ágúst. Að öðrum kosti yrði fyrsti leikur hans gegn Liverpool 22. ágúst. Hinn 37 ára gamli Cristiano Ronaldo lýsti því yfir við forráðamenn United í sumar að hann vildi komast frá félaginu og spilaði aðeins einn leik á undirbúningstímabilinu, gegn Rayo Vallecano, og yfirgaf leikvanginn áður en leik lauk eftir að hafa verið skipt af velli. Það vakti litla kátínu hjá nýja stjóranum. Ef Ten Hag stillir Ronaldo ekki upp í fremstu víglínu gæti hann ákveðið að hafa Marcus Rashford sem fremsta mann gegn Brighton. Góðu fréttirnar fyrir nýja stjórann eru þær að Jadon Sancho hefur jafnað sig af veikindum og er klár í slaginn, samkvæmt frétt The Athletic.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira