Innlent

Sprengisandur í beinni útsendingu

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.

Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til tólf í dag. Hægt verður að hlusta á þáttinn í útvarpi, en einnig hér á Vísi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur mætir til Kristjáns og mun tengja saman hitabylgjur og loftslagsbreytingar sem verið hafa á allra vörum síðustu vikur. Til umræðu verður hvort þau tengsl séu ótvíræð og  hvernig hægt sé að slá því föstu.

Ágúst Arnórsson hagfræðingur ætlar að ræða skylt mál, nýja skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um kostnað og ábata af aðgerðum í loftslagsmálum. Rætt verður hvort það geti verið að stórtækar aðgerðir sem fyrirhugaðar eru skili alls ekki þeim ávinningi sem haldið hefur verið á lofti. 

Þeir Þórólfur Matthíasson prófessor og Svanur Guðmundsson sjávarútvegsfræðingur ætla að halda áfram rökræðum um sjávarútveginn og skyldur hans við þjóðina. Hvort arðurinn af honum sé langtum meiri en af öðrum atvinnugreinum, um það er þessir ágætu menn hjartanlega ósammála.

Í lok þáttar mun Kristján ræða ofbeldi og ofbeldisvarnir, ekki síst í tilefni fjölmennra samkoma um allt land nánast um hverja helgi. Neyðarlínan í samvinnu við dómsmálaráðuneytið, lögregluembættin og fjölda annarra standa fyrir átaki undir slagorðinu Góða skemmtun. Benedikta Sörensen Valtýsdóttir og Guðfinnur Sigurvinsson mæta og ræða þessi mál frá ýmsum hliðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×