Samkvæmishúsabann Airbnb orðið varanlegt Bjarki Sigurðsson skrifar 28. júní 2022 18:34 Samkvæmishús eru hús sem leigð eru í einungis eina nótt til að halda samkvæmi eða partý. Getty Í rúmlega tvö ár hafa svokölluð „samkvæmishús“ ekki verið leyfð á vefsíðu Airbnb. Þeir sem brjóta regluna verða bannaðir alfarið hjá heimagistingaþjónustunni.
Samkvæmishús eru hús sem leigð eru í einungis eina nótt til að halda samkvæmi eða partý. Eigendur húsanna sem leigja þau út hafa oft ekki gefið grænt ljós á fjölda þeirra sem mæta og getur fyrirtækið lítið gert í því ef allt fer úr böndunum. Í lok október árið 2019 voru fimm manns skotnir til bana í hrekkjavökuteiti í Kaliforníu-ríki. Leigjandinn hafði sagt eigandanum að hún væri að leigja húsið til að halda fjölskyldumatarboð en í staðinn bauð hún yfir hundrað manns í partý. Í kjölfar skotárásarinnar setti Airbnb á tímabundið „samkvæmishúsabann“ þar sem leiga sem þessi var gerð með öllu óheimil. Banninu var síðan aflétt en eftir að heimsfaraldur kórónuveirunnar Covid-19 hófst var bannið sett aftur á. Þá hafði fólk byrjað að leigja hús til að halda samkvæmi þar sem allir skemmtistaðir voru lokaðir. „Eigendur húsa sem nota vefsíðuna okkar hafa tekið vel í bannið og við höfum fengið jákvæð viðbrögð frá leiðtogum samfélaga og kjörnum fulltrúum,“ segir í tilkynningu frá Airbnb.
Airbnb Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira