Renault Megane E-Tech frumsýndur í dag Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 11. júní 2022 07:01 Renault Megan E-Tech. Renault við Sævarhöfða frumsýnir í dag laugardag, 11. júní milli kl. 12 og 16, rafbílinn Megane E-Tech sem hefur allt að 470 km drægni. Megane hefur frá upphafi verið einn vinsælasti fjölskyldubíll Renault og hefur nú verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan og má segja að um algerlega nýjan bíl sé að ræða, sem hefur þegar verið kjörinn fjölskyldubíll ársins hjá TopGear.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL. Allt að 470 km drægni Megane E-Tech er boðinn í fimm mismunandi búnaðarútfærslum og vali um 40 kWh eða 60 kWh rafhlöðu við 160 kW rafmótor sem gefur annars vegar 130 hestöfl og allt að 300 drægni og hins vegar 220 hestöfl og allt að 470 km drægni. Bíllinn tekur mismunandi hleðslukosti, þar á meðal 22 kWh AC hleðslu, DC hleðslu og allt að 130kW hraðhleðslu í vönduðustu útgáfu bílsins sem gerir kleift að hlaða allt að 400 km drægni á rafhlöðuna á rúmum hálftíma. Myndband af bílnum á Youtube-rásinni EV Review Ireland. Mikill og vandaður búnaður Grunngerð Renault Megane E-Tech, sem ber heitið Equlibre (áður Zen), er útbúin með 12“ skjá í mælaborði, Arkamis hljómkerfi, hita í sætum og stýri og notendavænu Android/Google-stýrikerfi í margmiðlunarkerfi bílsins sem stjórnað er frá 9“ skjá. Þá er Equlibre einnig með bakmyndavél og nálægðarskynjurum, akgreinavara og stýringu, aðfellanlega hurðarhúna, vegaskiltisnema og fjölmargt fleira. Verð Eins og áður segir er Renault Megane E-Tech boðinn í fimm mismunandi búnaðarútfærslum og er verðið frá 5.390 þúsundum króna fyrir Equlibre til 6.990 þúsunda króna fyrir Iconic sem er vandaðasta útgáfa Renault Megane E-Tech, sem ásamt öðru er búinn Harman Kardon hljómflutningskerfi eins og kemur fram á renault.is.
Vistvænir bílar Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent