Bjarki skoraði níu í jafntefli Atli Arason skrifar 8. júní 2022 18:30 Bjarki Már Elísson í leik með íslenska landsliðinu. EPA-EFE/Tamas Kovacs Það voru 16 íslensk mörk í fimm leikjum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Bjarki Már var með langflest þeirra.
Janus Daði Smárason og félagar í Gröppingen gerðu jafntefli við Lemgo með Bjarka Má Elísson í fararbroddi, 33-33. Enginn skoraði fleiri mörk en Bjarki sem skoraði níu mörk í tíu tilraunum. Janus Daði gerði eitt mark úr tveimur skotum. Oddur Grétarsson og Daníel Þór Ingason í HBW Balingen-Weilstetten gerðu einnig jafntefli, 23-23 við Füchse Berlin. Oddur skoraði þrjú mörk í fjórum tilraunum en Daníel tókst ekki að nýta einu marktilraun sína í leiknum. Alexander Petersson og Arnar Freyr Arnarsson, leikmenn Melsungen, komust hvorugir á blað í fimm marka sigri liðsins á Wetzlar, 27-22. Ýmir Örn Gíslason komst heldur ekki á blað í 26-33 tapi Rhein-Neckar Löwen gegn Kiel. Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer unnu þriggja marka sigur á útivelli gegn Flensburg, 21-24. Arnór Þór skoraði úr öllum þremur skotum sínum í leiknum. Gröppingen er í 5. sæti deildarinnar með 38 stig, Lemgo kemur þar á eftir í 6. sæti með 35 stig. Melsungen er í 8. sæti með 33 stig, Rhein-Neckar er í 10. sæti með 30 stig og Bergischer með 27 stig í 11. sæti. HBW er í vandræðum en liðið er í fallsæti, 17. og næst neðsta sæti deildarinnar með 16 stig. Liðin eiga öll tvo til þrjá leiki eftir.
Þýski handboltinn Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira