Icelandair hefur núna hafið beint áætlunarflug til Raleigh, höfuðborgar Norður-Karólínu, en þaðan er um þriggja stunda akstur til Kitty Hawk, sem er við strönd Atlantshafsins. Þegar ráðamenn systurborganna Raleigh og Durham ásamt Icelandair buðu okkur í kynnisför um svæðið gripum við tækifærið til að heimsækja staðinn þar sem Wright-bræður breyttu mannkynssögunni.

„Þeir kenndu okkur að fljúga,“ stendur á minnisvarða um bræðurna en á safni á staðnum má sjá nákvæma eftirlíkingu fyrstu flugvélarinnar. Sú upprunalega er varðveitt á Smithsoninan-safninu í Washington, skammt frá þinghúsinu og Hvíta húsinu.
Í Kitty Hawk er einnig búið að endurgera flugskýlið og verkstæðið þar sem þeir smíðuðu flugvélina og við hliðina er flötin þar sem fyrsta flugið var. Stór minnisvarði um þá Orville og Wilbur er svo ofan á stórri hæð en hana notuðu bræðurnir fyrst til að prófa sig áfram með svifflugur.

Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Icelandair, var ásamt eiginkonu sinni, Peggy Helgason, sérstakur heiðursgestur Icelandair í þessu fyrsta flugi til Norður-Karólínu. Svo vill til að Peggy er frá Norður-Karólínu og þar kynntust þau hjónin árið 1972 þegar bæði stunduðu þar háskólanám. Það má því segja að Sigurður sé tengdasonur Norður-Karólínu.
Í þættinum Ísland í dag er rætt við Sigurð, en einnig þau Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, og Sylvíu Kristínu Ólafsdóttir, framkvæmdastjóra markaðs- og þjónustumála, um Norður-Karólínu og þau spurð hvort þangað sé eitthvað áhugavert að sækja fyrir Íslendinga. Hér má sjá fimm mínútna kafla úr þættinum:
Í þættinum skýra ráðamenn Icelandair, þau Bogi Nils og Sylvía Kristín, hversvegna félagið valdi að bæta þessum tiltölulega lítt þekkta áfangastað við leiðakerfi félagsins. Hér má sjá þáttinn í heild en hann er tæplega þrettán mínútna langur: