Hyggjast klára brúargólfið í Þorskafirði fyrir veturinn Kristján Már Unnarsson skrifar 6. júní 2022 22:26 Einar Valur Valgarðsson, verkstjóri Suðurverks í Þorskafjarðarbrú. Arnar Halldórsson Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin.
Fjallað var um verkefnið í fréttum Stöðvar 2 en það var í aprílmánuði í fyrra, fyrir rúmu ári, sem verktakinn Suðurverk hóf þverun Þorskafjarðar. Það er þó fyrst núna sem hin eiginlega brúarsmíði er komin á fulla ferð. Frá brúargerðinni yfir ÞorskafjörðArnar Halldórsson Þegar fyllingin undir brúarstæðið var orðin þétt mætti flokkur Vegagerðarinnar á svæðið til að reka niður staura og verktakinn Árni Helgason á Ólafsfirði sá um að girða stöplastæðin af með stálþili. Smíðaflokkur frá Eykt mætti svo í febrúar til að smíða brúarstöplana. „Þrír stöplar komnir niður af sjö. Þannig að þetta potast,“ segir Einar Valur Valgarðsson, verkstjóri Suðurverks í þessu 2,2 milljarða króna verki. Sjö stöplar verða undir brúnni. Þrír þeirra eru tilbúnir.Arnar Halldórsson „Við stefnum að því að ljúka brúargólfinu í haust, fyrir næsta vetur. Þannig að þá erum við á grænni grein með framhaldið.“ Þá verður unnt að moka undan 260 metra langri brúnni, hleypa firðinum undir og síðan tengja brúna við landið vestanmegin. „Þetta fer náttúrulega allt eftir veðrum. Og hér getur verið mjög illviðrasamt hér niður við sjóinn, norðanfræsingur og rok, þó að það sé allt annað veður hér ofar í landinu.“ Þegar brúargólfið verður tilbúið í haust verður grafið undan brúnni og byrjað að tengja hana við land vestanmegin.Arnar Halldórsson Starfsmenn eru núna tæplega tuttugu talsins en fjölgar þegar brúarsmíðin nær hámarki. „Þegar hefst vinna í brúargólfinu, þá fjölgum við smiðum og keyrum þetta áfram. Hér er ekkert stoppað. Hér er bara unnið alla daga.“ Og ekki væsir um mannskapinn því Suðurverk hefur leigt Hótel Bjarkalund undir vinnubúðir en á meðan er það ekki rekið sem hótel fyrir ferðamenn. „Nei, það verður lokað alveg. Við verðum með það meðan á þessu verki stendur.“ Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit. Tignarleg Vaðalfjöll gnæfa yfir.Arnar Halldórsson Einar segir verkið nokkurn veginn á áætlun. „Það er í júnílok 2024 sem verktíminn á að vera búinn. Þannig að þá geta landsmenn og aðrir keyrt hér yfir. Og svo áframhaldið í Teigsskóginum, sem verið er að byrja á núna,“ segir Einar Valur hjá Suðurverki. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Vegagerð Samgöngur Reykhólahreppur Teigsskógur Umferðaröryggi Tengdar fréttir Þingmannssonur frá Akureyri sem hóf að ryðja Teigsskóg Ungur akureyskur þingmannssonur á trjákurlara er í raun sá sem byrjaði á því að ryðja Teigsskóg. Hann er langt kominn með að hreinsa burt allt það skóglendi sem þarf að víkja vegna vegagerðarinnar. 31. maí 2022 22:30 Gröfustjórinn segir að passa verði hverja þúfu í Teigsskógi Ein umdeildasta vegagerð landsins, lagning vegar um Teigsskóg, hófst í dag, nítján árum eftir að tillaga um þessa veglínu var fyrst kynnt. Þessi ellefu kílómetra vegarkafli á að verða tilbúinn í október á næsta ári. 30. maí 2022 23:23 Vill ekki vera kölluð Gugga þótt hún stýri Bjarkalundi Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit, sem frægt varð fyrir sjónvarpsþættina um Georg Bjarnfreðarson og félaga, hefur verið tekið undir vinnubúðir. Þar má samt enn sjá leikmuni úr Dagvaktinni, þar á meðal morðvopnið sem notað var til að drepa hótelstýruna Guggu. 5. október 2021 21:21 Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks. 30. september 2021 22:44 Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8. apríl 2021 19:52 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Birgitta Líf hefði mátt sýna meiri nærgætni eftir havaríið á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira
Þingmannssonur frá Akureyri sem hóf að ryðja Teigsskóg Ungur akureyskur þingmannssonur á trjákurlara er í raun sá sem byrjaði á því að ryðja Teigsskóg. Hann er langt kominn með að hreinsa burt allt það skóglendi sem þarf að víkja vegna vegagerðarinnar. 31. maí 2022 22:30
Gröfustjórinn segir að passa verði hverja þúfu í Teigsskógi Ein umdeildasta vegagerð landsins, lagning vegar um Teigsskóg, hófst í dag, nítján árum eftir að tillaga um þessa veglínu var fyrst kynnt. Þessi ellefu kílómetra vegarkafli á að verða tilbúinn í október á næsta ári. 30. maí 2022 23:23
Vill ekki vera kölluð Gugga þótt hún stýri Bjarkalundi Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit, sem frægt varð fyrir sjónvarpsþættina um Georg Bjarnfreðarson og félaga, hefur verið tekið undir vinnubúðir. Þar má samt enn sjá leikmuni úr Dagvaktinni, þar á meðal morðvopnið sem notað var til að drepa hótelstýruna Guggu. 5. október 2021 21:21
Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks. 30. september 2021 22:44
Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8. apríl 2021 19:52