Sjáðu slysamark í Keflavík og öll hin mörkin á Víkingakvöldi í Bestu í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2022 09:00 Helgi Guðjónsson skoraði á móti sínum gömlu félögum í gær þegar hann kom Víkingi í 1-0 á móti Fram. Vísir/Hulda Margrét Víkingarnir úr Reykjavík og Keflavík röðuðu inn mörkum í Bestu deildinni í fótbolta í gærkvöld og nú má sjá þessi mörk inn á Vísi.
Íslandsmeistarar Víkings unnu 4-1 heimasigur á Fram og Keflvíkingar unnu 3-0 heimasigur á Leikni úr Reykjavík. Eftir leikinn eru Víkingar í fjórða sæti deildarinnar en eftir sinn fyrsta sigur í sumar þá eru Keflvíkingar í níunda sæti. Keflvíkingar komust yfir á móti Leikni í upphafi leiks eftir slysamark þar sem Viktor Freyr Sigurðsson, markvörður Leiknis, missti boltann eftir að hafa stokkið á fyrirliða sinn. Adam Ægir Pálsson þakkaði pent fyrir og setti boltann í markið. Bjarki Aðalsteinsson, fyrirliði Leiknis, þurfti að fara af velli eftir þetta samstuð við sinn eigin markmann. Klippa: Mörkin úr leik Víkings og Fram Leiknismenn voru reyndar ekki hættir að gefa mörk því annað mark Keflvíkingar kom eftir að Leiknisliðið gaf boltann tvisvar frá sér á nokkrum sekúndum fyrir framan eigin vítateig. Þriðja markið var það eina sem var ekki á algjöru útsöluverði. Patrik Johannesen skoraði annað markið og Helgi Þór Jónsson það þriðja. Reykjavíkur Víkingar komust í 3-0 í fyrri hálfleiknum eftir tvö mörk frá Erlingi Agnarssyni og eitt frá gamla Framaranum Helga Guðjónssyni sem kom Víkingsliðinu á bragðið í leiknum. Hlynur Atli Magnússon minnkaði muninn fyrir Framara en síðan gerði Delphin Tshiembe þau mistök að senda boltann í eigið mark. Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr þessum tveimur leikjum frá því í gærkvöldi. Klippa: Mörkin úr leik Keflavíkur og Leiknis
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Keflavík ÍF Leiknir Reykjavík Fram Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira