Chelsea skrefi nær Meistaradeildinni | Leeds áfram í fallsæti Atli Arason skrifar 11. maí 2022 20:30 Stöðva þurfti leikinn á 37. mínútu vegna neyðaratviks í stúkunni AFP Chelsea gerði góða ferð til Leeds og sótti stigin þrjú með öruggum 0-3 sigri. Mount gerði fyrsta mark leiksins strax á fjórðu mínútu eftir samleik við Recce James. Mount skoraði með föstu skoti upp í samskeytin framhjá Ilan Meslier í marki Leeds. Verkefni Leeds í dag varð enn þá erfiðara á 24. mínútu þegar Daniel James gerir sig sekan um slæm mistök með harkalegri tæklingu á Mateo Kovacic og uppskar beint rautt spjald fyrir vikið. Á 37. mínútu var leikurinn stöðvaður þegar stuðningsmaður í hóp Chelsea hneig niður í stúkunni. Líðan stuðningsmannsins er sögð stöðug núna þökk sé snöggrar aðstoðar viðbragðsaðila á svæðinu. Sjö mínútum var bætt við fyrri hálfleikinn fyrir vikið en Chelsea fór með 1-0 forystu inn í hálfleikshléið. Christian Pulisic tvöfaldaði forystu Chelsea þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Pulisic skoraði með hnitmiðuðu skoti úr D-boganum eftir hælsendingu frá Mason Mount. Romelu Lukaku kláraði svo leikinn fyrir Chelsea á 83. mínútu leiksins með góðu marki eftir einstaklingsframtak. Sigur Chelsea þýðir að liðið er svo gott sem öruggt með sæti í Meistaradeildinni fyrir næsta tímabil. Chelsea er í þriðja sæti með 70 stig, átta stigum meira en Tottenham sem er í fimmta sæti og á þrjá leiki eftir. Staða Leeds er hins vegar öllu dekkri, liðið er í fallsæti, því 18. með 34 stig. Burnley er einu sæti ofar með jafn mörg stig en betri markatölu. Burnley á leik til góða á Leed. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti