Lífið

Rólegi kúrekinn hannar föt með kúreka innblæstri

Helgi Ómarsson skrifar
Halldór Karlsson sýndi útskriftarlínu sína með kúreka innblæstri með samnemendum sínum á HönnunarMars.
Halldór Karlsson sýndi útskriftarlínu sína með kúreka innblæstri með samnemendum sínum á HönnunarMars. Helgi Ómars/Vísir

Halldór Karlsson betur þekktur sem Dóri Dino lyftir lóðum, drekkur Nocco og er á þriðja ári í fatahönnunarnámi Listaháskóla Íslands. 

Hann var einn af níu hönnuðum sem tók þátt í tískusýningu útskriftarnema í fatahönnun sem sýnd var á HönnunarMars með miklum eftirtektum.

Halldór Karlsson eftir tískusýningunaHelgi Ómars/Vísir

Á svið stigu glæsilegir herramenn úr línu Halldórs í hönnun með sterkum innblæstri frá kúrekum og allir í kúreka stígvélum en deildi hann á Instagram síðu Listaháskólans þar sem hann deilir myndum sem veittu honum innblástur við gerð línunar. 

Flestir þekkja lagið Rólegur Kúreki eftir Bríeti en það eru með rúmlega tvær og hálfa milljón hlustanir á Spotify, en sagan segir að hinn eini sanni kúreki sem hún syngur um sé Halldór. 

Tilviljun eða ekki, þá er línan glæsileg er enginn vafi um að Halldór eigi bjartan feril framundan í nýju hlutverki sem fatahönnuður. 

Útskriftarlína HalldórsHelgi Ómars/Vísir
Útskriftarlína HalldórsHelgi Ómars/Vísir

HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar

Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  

Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022


Tengdar fréttir

Speglar úr stáli vekja athygli

Vöruhönnuðurinn Theodóra Alfreðsdóttir hélt sýninguna „Speglar“ í versluninni Mikado á Hverfisgötu. Speglarnir eru fyrstu vörurnar í stærra verkefni efnistilrauna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.