Baráttan um miðana níu hundruð hefst klukkan tíu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. apríl 2022 15:38 Frá gömlu síldarvinnslunni eitt gott Bræðslukvöld. Ingibjörg Torfadóttir Telja má líklegt að einhverjir hristi hausinn um hádegisbil á morgun þegar þeir átta sig á því að miðasölu á Bræðsluna 2022 er lokið. 900 miðar eru í boði á hátíðina og í ljósi reynslunnar má reikna með að miðarnir rjúki út á augabragði. Þeir sem sofa á verðinum gætu því misst af miðum enda uppsöfnuð þrá landsmanna og ferðamanna eftir tónleikastemmningu eftir faraldurinn.
Bræðslan fer fram í 17. skiptið á Borgarfirði eystra laugardaginn 23. júlí. Sem fyrr fer skemmtunin fram í gömlu síldarbræðslunni sem Borgfirðingar breyta í tónleikahöll eitt kvöld ár hvert. Auk sjálfra Bræðslutónleikanna hefur skapast mikil hefð fyrir tónleikahaldi í öðrum samkomuhúsum í vikunni fyrir Bræðslu. Aðdáendur lifandi tónlistar fá því nóg fyrir sinn snúð á Borgarfirði flestar helgar í sumar. Listafólkið sem fram kemur á Bræðslutónleikum sumarsins er að vanda fjölbreyttur hópur, enda markmið hátíðarhaldara að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi, en helsta einkennismerki hátíðarinnar er sá fjölskylduandi sem þar ríkir. Ung og efnileg söngkona, Malen Áskelsdóttir mun verða fyrst á svið þetta árið og þá stíga þar á stokk hin frábæra hljómsveit Flott sem hlaut nýverið íslensku tónlistarverðlaunin fyrir besta lag síðasta árs, auk þess að vera valin þar bjartasta vonin. Svona var staðan á tjaldsvæðinu á Bræðslunni sumarið 2014.Vísir/Kolbeinn Tumi Reynsluboltarnir og Bræðsluvinirnir Mugison og KK munu koma fram saman og stórsveitin og aldamótabandið Írafár treður upp með Birgittu Haukdal fremsta í flokki. Það er svo Bræðslunni sérstakur heiður að bjóða þetta árið upp á eina af stærstu og vinsælustu hjómsveitum landsins – þjóðlagaþungarokksbandið Skálmöld. „Borgarfjörður eystra hefur eflst gríðarlega sem áfangastaður fyrir ferðafólk á síðustu árum og gestir Bræðslunnar ættu að kanna hvað er í boði þar inn á vefnum borgarfjordureystri.is. Þar má fræðast um framboð gistingar, veitingastaða og afþreyingar, en göngusvæðið í kringum Borgarfjörð er einstakt og upplagt að tengja ferðalag þangað við heimsókn í Bræðsluna. Önnur dagskrá í firðinum í sumar og þá sérstaklega í aðdraganda Bræðslu verður svo kynnt sérstaklega þegar nær dregur, en miðasala á þá viðburði fer fram síðar,“ segir í tilkynningu. Miðasala fer fram á vefsíðu hátíðarinnar braedslan.is.
Bræðslan Múlaþing Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Háleynilegt eftirpartý með Stellu, hamingjusamri Stjórninni og álfunum Borgarfjörður eystri er staðurinn til að vera á helgina fyrir Verslunarmannahelgi en þá fer Bræðslan fram. 1. ágúst 2018 09:00 Mest lesið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Lífið Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Lífið Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Lífið Fleiri fréttir Ekkert rapplag á topp 40 í fyrsta sinn í 35 ár „Lélegur í að fela hvernig mér líður og bera harm minn í hljóði“ Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Spila jólalög allan sólarhringinn fram að jólum Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á íslenskum stjörnum Katrín Odds og Þorgerður ástfangnar á frumsýningu Englar Birnis frumsýndir og heimildarmynd á leiðinni Sleppti tökunum á ástarsorgarplötu aldarinnar Lofar hlustendum jákvæðri og skemmtilegri stemmingu Þetta eru bestu lög 21. aldarinnar „Þetta er ömurleg fjárhagsleg ákvörðun“ Borgarstjóri og bombur í brjálaðri GusGus-gleði Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Íslenskar stjörnur heiðra Bítlana Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Sjá meira
Háleynilegt eftirpartý með Stellu, hamingjusamri Stjórninni og álfunum Borgarfjörður eystri er staðurinn til að vera á helgina fyrir Verslunarmannahelgi en þá fer Bræðslan fram. 1. ágúst 2018 09:00