Valsmenn geta orðið fyrstir til að sópa báðum meisturum út Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. apríl 2022 14:00 Callum Reese Lawson varð Íslandsmeistari með Þór i fyrra en spilar nú með Valsliðinu. Vísir/Bára Dröfn Valsliðið er aðeins einum sigri frá sæti í úrslitaeinvígi Subway deildar karla í körfubolta eftir sigra í tveimur fyrstu leikjum sínum á móti Þór úr Þorlákshöfn. Valsmenn unnu fimm stiga sigur í framlengdum fyrsta leik í Þorlákshöfn (89-84) og fylgdu því síðan eftir með sannfærandi tólf stiga sigri í síðasta leik á Hlíðarenda (87-75). Íslandsmeistarar Þórs þurfa því að berjast fyrir lífi sínu í Icelandic Glacial-höllinni í kvöld því tap þýðir sumarfrí. Liðið sem skoraði 98 stig í leik í deildarkeppninni í vetur er aðeins með 79,5 stig í leik í fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu á móti Val. Leikurinn hefst klukkan 20.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfuboltakvöld byrjar upphitun klukkan 19.45 og gerir síðan leikinn upp á eftir. Valsmenn eiga möguleika á að afreka það í kvöld sem engu liði hefur tekist áður. Valsmenn hafa nefnilega þegar sópað út bikarmeisturum Stjörnunnar (3-0 í átta liða úrslitunum) og geta nú sópað út ríkjandi Íslandsmeisturum Þórs. Takist Valsmönnum að vinna leikinn í kvöld verða þeir fyrstir í sögunni til að sópa út bæði Íslands- og bikarmeisturum í sömu úrslitakeppni.
Valsmenn unnu fimm stiga sigur í framlengdum fyrsta leik í Þorlákshöfn (89-84) og fylgdu því síðan eftir með sannfærandi tólf stiga sigri í síðasta leik á Hlíðarenda (87-75). Íslandsmeistarar Þórs þurfa því að berjast fyrir lífi sínu í Icelandic Glacial-höllinni í kvöld því tap þýðir sumarfrí. Liðið sem skoraði 98 stig í leik í deildarkeppninni í vetur er aðeins með 79,5 stig í leik í fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu á móti Val. Leikurinn hefst klukkan 20.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfuboltakvöld byrjar upphitun klukkan 19.45 og gerir síðan leikinn upp á eftir. Valsmenn eiga möguleika á að afreka það í kvöld sem engu liði hefur tekist áður. Valsmenn hafa nefnilega þegar sópað út bikarmeisturum Stjörnunnar (3-0 í átta liða úrslitunum) og geta nú sópað út ríkjandi Íslandsmeisturum Þórs. Takist Valsmönnum að vinna leikinn í kvöld verða þeir fyrstir í sögunni til að sópa út bæði Íslands- og bikarmeisturum í sömu úrslitakeppni. Ríkjandi Íslandsmeistarar sem hefur verið sópað úr úrslitakeppni árið eftir: KR 2021* (0-3 á móti Keflavík í undanúrslitum) Snæfell 2011 (0-3 á móti Stjörnunni í undanúrslitum) Keflavík 2009 (0-3 á móti KR í undanúrslitum) Njarðvík 2003 (0-3 á móti Keflavík í undanúrslitum) KR 2001 (0-3 á móti Njarðvík í undanúrslitum) Grindavík 1997 (0-3 á móti Keflavík í lokaúrslitum) Keflavík 1990 (0-3 á móti KR í undanúrslitum) * KR vann Íslandsmeistaratitilinn 2019 en enginn Íslandsmeistari var krýndur 2020 vegna COVID-19
Ríkjandi Íslandsmeistarar sem hefur verið sópað úr úrslitakeppni árið eftir: KR 2021* (0-3 á móti Keflavík í undanúrslitum) Snæfell 2011 (0-3 á móti Stjörnunni í undanúrslitum) Keflavík 2009 (0-3 á móti KR í undanúrslitum) Njarðvík 2003 (0-3 á móti Keflavík í undanúrslitum) KR 2001 (0-3 á móti Njarðvík í undanúrslitum) Grindavík 1997 (0-3 á móti Keflavík í lokaúrslitum) Keflavík 1990 (0-3 á móti KR í undanúrslitum) * KR vann Íslandsmeistaratitilinn 2019 en enginn Íslandsmeistari var krýndur 2020 vegna COVID-19
Valur Þór Þorlákshöfn Subway-deild karla Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Sjá meira