Arsenal tók Lundúnaslaginn Atli Arason skrifar 20. apríl 2022 20:40 Getty Arsenal sótti stigin þrjú eftir 2-4 sigur á Chelsea á Brúnni í kvöld en Chelsea hefur ekki unnið Arsenal á heimavelli síðan 2019. Eddie Nketiah, leikmaður Arsenal skoraði fyrsta mark leiksins eftir mistök Andreas Christensen í vörn Chelsea á 13. mínútu leiksins. Timo Werner jafnar leikinn fyrir Chelsea ekki nema fjórum mínútum síðar með skoti utan af velli sem fer í Granit Xhaka, leikmanni Arsenal, og þaðan í netið. Emile Smith Rowe kemur svo Arsenal aftur í forystu á 27. mínútu eftir frábæra sókn gestanna þar sem boltinn gengur manna á milli alveg frá markteig Arsenal áður en hann endar í netinu á marki Chelsea. Cesar Azpilicueta jafnar leikinn enn á ný fyrir Chelsea á 32. mínútu eftir undirbúning frá Mason Mount og staðan í hálfleik var 2-2. Á 57. mínútu leiksins nær Eddie Nketiah að nýta sér misskilning í vörn Chelsea og skoraði þriðja mark Arsenal. Í uppbótatíma leiksins togar Azpilicueta, leikmaður Chelsea, Bukayo Saka, leikmann Arsenal, niður inn í vítateig Chelsea og vítaspyrna var dæmd. Saka fer sjálfur á punktinn og skorar fjórða mark Arsenal þegar hann sendir Edouard Mendy i vitlaust horn. Lokatölur 2-4 fyrir Arsenal. Arsenal fer upp í 57 stig með sigrinum og er nú jafnt Tottenham af stigum í fjórða til fimmta sæti. Tottenham er þó með betri markatölu þegar bæði lið hafa leikið jafn marga leiki. Chelsea er áfram í þriðja sæti með 62 stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti