Bjarki markahæstur í tapi | Lærisveinar Aðalsteins fóru á flug í síðari hálfleik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. mars 2022 18:27 Bjarki Már Elísson skoraði sjö mörk fyrir Lemgo í dag. EPA-EFE/Tamas Kovacs Íslendingar voru í eldlínunni í tveimur leikjum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta sem fram fóru í dag. Bjarki Már Elísson var markahæsti maður liðsins er Lemgo tapaði gegn Wisla Plock, 31-28, og Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten unnu sex marka sigur gegn Sävehof, 32-26.
Jafnræði var með liðunum í leik Lemgo og Wisla Plock og liðin skiptust á að hafa forystuna. Gestirnir í Wisla Plock náðu mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik, en það voru þó heimamenn í Lemgo sem leiddu í hálfleik, 15-13. Bjarki og félagar héldu forystunni fyrstu mínútur síðari hálfleiks, en gestirnir komust yfir í stöðunni 21-20 og litu aldrei um öxl eftir það. Wisla Plock vann að lokum þriggja marka sigur, 31-28 og fer því með þriggja marka forystu í síðari leik liðanna sem fer fram í Póllandi að viku liðinni. Þá unnu Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten öruggan sex marka sigur gegn Sävehof, 32-26. Sävehof hafði eins marks forystu í hálfleik í stöðunni 14-13, en heimamenn í Kadetten skoruðu 11 af fyrstu 13 mörkum síðari hálfleiksins og unnu að lokum góðan sigur. Kadetten og Sävehof mætast einnig að viku liðinni í síðari leik liðanna þar sem Aðalsteinn og lærisveinar hans eru í góðri stöðu.
Handbolti Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira