Fögnuðu sæti á HM án þess að vera komnir á mótið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. mars 2022 13:00 Bandaríkjamenn fagna HM-sætinu sem þeir eru ekki enn búnir að tryggja sér. getty/Julio Aguilar Leikmenn bandaríska karlalandsliðsins í fótbolta hlupu aðeins á sig þegar þeir fögnuðu sæti á HM í Katar eftir 5-1 sigur á Panama í gær.
Með sigrinum tóku Bandaríkjamenn stórt skref í áttina að Katar en þeir eru þó ekki búnir að tryggja sér farseðilinn þangað, allavega formlega. Bandaríkjamenn fögnuðu sigrinum vel og innilega og héldu meðal annars á borða þar sem sagði að þeir væru komnir á HM. En svo er ekki. Bandaríkin mæta Kosta Ríka í lokaleik sínum í undankeppninni á miðvikudaginn. Þeir þurfa að tapa með að minnsta kosti sex marka mun til að missa af HM-sæti. Christian Pulisic, sem skoraði þrennu í leiknum í Orlando í gær, baðst afsökunar á fagnaðarlátunum ótímabæru. „Strákarnir vissu ekki ekkert hvað stóð á borðanum. Þeir fengu hann bara. Það var engin ástæða til að flagga honum því við höfum ekki klárað okkar verk,“ sagði Pulisic. „Við nálgumst þennan leik eins og hvern annan. Við gerum það nákvæmlega eins og við þyrftum sigur.“ Fyrir fimm árum unnu Bandaríkin Panama, 4-0, í næstsíðasta leik sínum í undankeppninni en töpuðu fyrir Trínídad og Tóbagó, 2-1, í lokaleiknum og misstu þar af leiðandi af sæti á HM í Rússlandi. Ólíklegt er þó að það gerist að þessu sinni.
HM 2022 í Katar Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Sjá meira