Rigning eða súld þegar lægð gengur yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 24. mars 2022 06:56 Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tíu stig. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð gengur nú norðaustur yfir landið og spáir Veðurstofan að víða megi gera ráð fyrir suðvestan átta til fimmtán metrum á sekúndu fyrri part dags og rigning eða súld með köflum. Hiti verður á bilinu tvö til tíu stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að eftir hádegi snúist í norðlæga átt og kólni talsvert með dálitlum éljum, en þá verði yfirleitt hægur vindur og úrkomulítið sunnantil á landinu. Á Vestfjörðum kólnar þó heldur fyrr, þar verður komin norðanátt og éljagangur fyrir hádegi. „Í nótt ganga svo næstu skil inn á landið. Austan og suðaustan 10-18 m/s í fyrramálið og víða snjókoma eða slydda, en hægari vindur um landið austanvert. Vægt frost víðast hvar. Þegar líður á morguninn hlýnar á suðvesturhluta landsins með rigningu, og annað kvöld og aðra nótt hlánar einnig í öðrum landshlutum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustan og austan 10-18 m/s og snjókoma eða slydda, en hægari og úrkomuminna á NA- og A-landi. Frost 0 til 6 stig, en hlýnar SV-til á landinu með rigningu þegar líður á morguninn. Á laugardag: Suðvestan og sunnan 8-15 og rigning eða súld, en úrkomulítið um landið NA-vert. Hiti 3 til 10 stig. Hægari breytileg átt síðdegis og kólnar N-lands með dálítilli slyddu eða snjókomu. Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt 5-13 m/s. Snjókoma eða slydda með köflum á N- og A-verðu landinu með hita um og undir frostmarki. Lítilsháttar væta S- og SV-til með hita 3 til 8 stig. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg átt. Stöku él N- og A-lands með vægu frosti, en dálítil rigning eða slydda með köflum á S- og V-landi með hita 0 til 6 stig. Á miðvikudag: Suðaustlæg átt og bjart með köflum, en stöku él um landið V-vert. Hiti í kringum frostmark.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira