Volswagen ID Buzz kynntur til leiks Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 13. mars 2022 07:01 ID Buzz Rafbíllinn ID Buzz frá Volkswagen mun vera til bæði sem van og sem strumpastrætó. Hann sækir innblástur í klassíska hönnun á Volskwagen sem gekk undir nafninu rúgbrauð á Íslandi.
Fimm ár eru liðin síðan hugmyndin var kynnt á bílasýningunni í Detroit. Hann verður framleiddur í Hanover verksmiðju Volkswagen í Þýskalandi. Þar sem Volkswagen Multivan er framleiddur. Atvinnubílaútgáfan mun ganga undir nafninu ID Buzz Cargo, á meðn fólksbíllinn eða strumpastrætóinn verður kallaður ID Buzz. Fyrstu afhendingar verða Evrópu í haust. Allar útgáfur verða fáanlegar með einum mótor sem skilar afli til afturhjólanna. Sá mótor er sá sem kynntur hefur verið nýlega á öðrum ID bílum frá Volkswagen, sá skilar 201 hestafli. Fólksbíllinn er að miklu leyti sambærilegur Multivan og deila þeir að einhverju leyti yfirbyggingu. Lengri útgáfa af fólksbílnum sem getur þá tekið sö í sæti verður kynnt á næsta ári. Þangað til verður bíllinn fimm manna. Innra rými í ID Buzz Aflmeiri, fjórhjóladrifin útgáfa verður fáanleg á næsta ári. ID Buzz California húsbíll verður fáanlegur árið 2024. Innra rými í ID Buzz. Þá verður hugbúnaður bílsins uppfærður í gegnum tíðina í gegnum internetið og því óþarfi að fara með bílinn til þjónustuaðila til að uppfæra hugbúnað.Drægni fyrstu útgáfu sem verður afturhjóladrifin verður um 400 km samkvæmt WLTP staðlinum. Þetta mun svo þróast áfram með nýjum útfærslum.
Vistvænir bílar Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent