„Bjarki Már Elísson er ekki mennskur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. febrúar 2022 11:31 Bjarki Már Elísson átti hvað stærstan þátt í því að Lemgo náði í stig gegn sterku liði Nantes. vísir/vilhelm Bjarki Már Elísson fór hamförum þegar Lemgo gerði jafntefli við Nantes í Evrópudeildinni í handbolta í gær. Franskur fjölmiðill lýsti frammistöðu hans sem ómennskri.
Bjarki hefur verið í miklum ham síðan greint var frá félagaskiptum hans til Veszprém á föstudaginn. Hann skoraði níu mörk úr níu skotum þegar Lemgo tapaði fyrir Bergischer, 32-27, í þýsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Bjarki bætti um betur í leiknum gegn Nantes í gær og skoraði hvorki fleiri né færri en fimmtán mörk, úr fimmtán skotum. Í síðustu tveimur leikjum Lemgo hefur landsliðsmaðurinn því skorað samtals 24 mörk án þess að klikka á skoti. Nantes leiddi nánast allan tímann í leiknum gegn Lemgo í gær og þegar átta mínútur voru eftir var staða Frakkanna afar vænleg, enda fjórum mörkum yfir, 30-34. En Lemgo-menn gáfust ekki upp og komu til baka með Bjarka fremstan í flokki. Hann skoraði síðustu sex mörk þýska liðsins sem náði jafntefli, 37-37. Í umfjöllun franska vefmiðilsins Handnews.fr er ein millifyrirsögnin svohljóðandi: Bjarki Már Elísson er ekki mennskur. Bjarki skoraði sjö mörk í fyrri hálfleik en var svo nokkuð rólegur framan af þeim seinni og skoraði aðeins eitt mark á fyrstu tuttugu mínútum hans. En undir lokin hrökk hann eftirminnilega í gang. Hann skoraði sjö mörk á síðustu níu mínútum seinni hálfleiks, þar af síðustu sex mörk Lemgo eins og áður sagði. Sex af mörkum Bjarka gegn Nantes komu af vítalínunni. Lemgo er með átta stig í 4. sæti B-riðils Evrópudeildarinnar og er komið áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Bjarki hefur alls skorað 71 mark í Evrópudeildinni í vetur og er markahæsti leikmaður keppninnar.
Handbolti Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira