Erlent

Hættir eftir röð hneykslis­mála

Atli Ísleifsson skrifar
Cressida Dick hefur starfað innan Lundúnalögreglunnar í rúma fjóra áratugi.
Cressida Dick hefur starfað innan Lundúnalögreglunnar í rúma fjóra áratugi. EPA

Cressida Dick, yfirmaður Lundúnalögreglunnar, tilkynnti í gær að hún myndi láta af störfum eftir um fjögur ár í embættinu. Hún segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að hætta eftir að borgarstjórinn Sadiq Khan hafi tjáð henni að hann bæri ekki lengur traust til hennar.

Tilkynningin kemur í kjölfar nokkurra hneyksismála sem skekið hafa Lundunalögregluna að undanförnu. Þannig birtu eftirlitsaðilar lögreglu skýrslu í síðustu viku sem leiddi í ljós að „skammarleg“ menning kvenhaturs, hinseginhaturs, mismununar og kynferðislegrar áreitni þrifist innan Lundúnalögreglunnar og að ekki nægilega mikið hafi verið gert til að uppræta hana.

Cressida Dick, sem er fyrsta konan til að gegna stöðu yfirmanns Lundúnalögreglunnar, hefur sömuleiðis sætt gagnrýni vegna rannsóknarinnar á morðinu á Söruh Everard, sem drepin var af lögreglumenninum Wayne Couzens í mars á síðasta ári.

Í tilkynningu frá Dick segir að hún hafi samþykkt að starfa áfram innan lögreglunnar í stuttan tíma til að tryggja stöðugleika þar til að nýr maður sest í brúna.

Það er á könnu innanríkisráðherra Bretlands að skipa nýjan yfirmann Lundúnalögreglunnar, að höfðu samráði við borgarstjóra Lundúna.

Dick hefur starfað innan lögreglunnar í rúma fjóra áratugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×